Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Lögðu öryggið að veði til að koma sjúklingi í skjól

Read Full Article →

Innlent | mbl | 24.3.2026 | 15:45 Lögðu öryggið að veði til að koma sjúklingi í skjól Hringveginum um Möðrudalsöræfi var lokað í gær. Setja bókamerki Tengdar fréttir Samgönguáætlun 2026-2040 Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Ófært á meðan göngin bíða útboðs Eyjólfur leggur samgönguráð niður „Hverju er hægt að treysta?“ Horfði ekki bara til einnar skýrslu » Fleiri tengdar fréttir Framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) segir ástandið í landshlutanum ekki boðlegt, hvorki fyrir viðbragðsaðila, Austfirðinga sem þiggja þjónustu stofnunarinnar, né þá sem skipuleggja þjónustuna. Hann telur nauðsynlegt að tryggja greiðar leiðir milli þjónustumiðjunnar á Egilsstöðum og sjúkrahússins í Neskaupstað. Þetta kemur fram í aðsendri grein á Vísi en tilefnið eru þær aðstæður sem sköpuðust í gær þegar læknir, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk urðu að leggja eigin heilsu og öryggi að veði til að flytja sjúkling til Akureyrar. Frétt af mbl.is Sjúkrabíl fylgt frá Egilsstöðum til Akureyrar „Ekki í gær“ Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað en á Egilsstöðum er rekin heilsugæsla. „Í gærkvöldi voru þær staðreyndir marklausar því þeir 74 km sem skilja þessar öflugu einingar að gátu vegna vegleysu allt eins verið 700 eða 740. Við þessar aðstæður veikist sjúklingur alvarlega,“ segir í grein Eyjólfs Þorkelssonar, framkvæmdastjóra lækninga við HSA. Hann segir þessar aðstæður oft koma upp á hverjum vetri en sem betur fer komi það sjaldan fyrir að fólk veikist akkúrat á meðan. „Ekki í gær. Í gær þurftu læknar og sjúkralið á Egilsstöðum að leggja eigið öryggi undir til að fara í fylgd björgunarsveitar og Vegagerðar með sjúkling landleiðina til Akureyrar,“ segir í greininni. Frétt af mbl.is Ófært á meðan göngin bíða útboðs „Brjótast í brjáluðu veðri í fleiri klukkutíma “ „Eftir tveggja klukkustunda samráð milli heilsugæslu og sjúkrahúss HSA, sjúkraflugs, Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, þyrlulæknis, Landhelgisgæslu, Vegagerðar, Björgunarsveita og Slökkviliðsins á Akureyri voru valmöguleikarnir tveir: Senda sjúkling heim og taka sénsinn á að líffæraskaði væri ekki óafturkræfur og ástand hans myndi ekki versna, eða brjótast í brjáluðu veðri í fleiri klukkutíma yfir fjöllin til að geta lagt hann inn á sjúkrahús í öruggar aðstæður. Hvorugur kosturinn var góður. Báðir hættulegir.“ Svo fór að sjúklingurinn var fluttur á Akureyri um vegi sem voru lokaðir almenningi. „Við þessar aðstæður lögðu læknir, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk eigin heilsu og öryggi að veði til að koma sjúklingi í skjól.“ Eyjólfur segist þakklátur að vinna með hetjum af slíku kaliberi en ástandið sé óboðlegt. „Þetta er ekki boðlegt því þetta þarf ekki að vera svona,“ segir í greininni. Frétt af mbl.is Segir þingmennina hafa meiri áhuga á öðru en Norðausturkjördæmi „Við getum byrjað strax“ Eyjólfur telur nauðsynlegt að tryggja greiðar leiðir milli þjónustumiðjunnar á Egilsstöðum og sjúkrahússins í Neskaupstað, og milli sjúkrahússins í Neskaupstað og flugvallarins á Egilsstöðum. „Þetta er nauðsyn og við getum byrjað strax. Fjarðarheiðargöng eru tilbúin til útboðs. Í beinu framhaldi þarf að grafa Mjóafjarðargöng til Neskaupstaðar. Þannig tryggjum við þjónustu sjúkrahússins fyrir Austfirðinga og öryggi vegfarenda. En þá verður að grafa göngin í þessari röð. Annað er fásinna,“ segir í greininni. „Fyrir fjórðung sem leggur jafn mikið í tekjur til ríkissjóðs er annað móðgun. Fyrir ríkisstjórn sem situr á grundvelli loforða um að laga heilbrigðiskerfið og samgöngur er annað ekki trúverðugt.“ Tengdar fréttir Samgönguáætlun 2026-2040 Framkvæmdir sáttmálans fjármagnaðar Ófært á meðan göngin bíða útboðs Eyjólfur leggur samgönguráð niður „Hverju er hægt að treysta?“ Horfði ekki bara til einnar skýrslu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Frá Bayern München til Manchester United? Lögðu öryggið að veði til að koma sjúklingi í skjól Er verið að byggja of mikið? Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Myndskeið: KA-maðurinn ótrúlegi bestur Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Allt innanlandsflug í lamasessi til morguns „Ég er harmi slegin“ Ætla ekki í ófjármagnaðar aðgerðir Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Gul viðvörun fyrir land allt „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Nýjast á mbl.is » Frá Bayern München til Manchester United? Lögðu öryggið að veði til að koma sjúklingi í skjól Er verið að byggja of mikið? Árásir halda áfram: Engin friður í augsýn Myndskeið: KA-maðurinn ótrúlegi bestur Umræðan Tryggjum jafnræði í grunnskólunum Við höfum ekki tekið upp 80% af regluverki ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt innanlandsflug í lamasessi til morguns Flugslys í Kólumbíu – 80 um borð Segir „af og frá“ að viðræður séu hafnar Við hvern er verið að semja í Íran? Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Gul viðvörun fyrir land allt „Kommissarinn“ íslenskur Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Gerir ráð fyrir sömu aðhaldsaðgerð alls staðar Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð „Ég er harmi slegin“ Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Starfsfólk fær engin páskaegg í ár Gular viðvaranir: Stormur og blindbylur Ísland krafið um skýr svör Vilja hætta að rukka á kvöldin Vara við blindbyl Áttu 6-8 stundir í land þegar Gæslan greip inn í Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Slæmt skyggni og vegir víða lokaðir Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni „Fundum manninn hálfsturlaðan“

Share this article