Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

„Auðvitað var maður í sjokki og fer að hugsa: Ætli mitt barn hafi lent í honum?“

  • What: Investigation into a staff member at a daycare in Iceland
  • Impact: Parents were not informed about the investigation
Read Full Article →

Móðir barns á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri segir foreldra í sjokki eftir að stjórnendur upplýstu á föstudag að starfsmaður hafi sætt rannsókn vegna óviðeigandi framkomu gagnvart barni haustið 2024. Hún gagnrýnir sveitarfélagið fyrir upplýsingaskort og aðgerðarleysi. Tilkynntu um málið með tölvupósti Starfsmaður leikskólans Tröllaborga á Akureyri sætti rannsókn haustið 2024 vegna óviðeigandi framkomu gagnvart barni. Foreldrar og forráðamenn voru ekki upplýstir um stöðuna og fékk starfsmaðurinn að starfa við leikskólann á meðan á rannsókninni stóð. Starfsmaðurinn var á tímabundnum samningi frá 18. apríl til 17. október en var rekinn í byrjun október. Lögreglan á Norðurlandi eystra hafði málið til rannsóknar á sínum tíma en það var látið niður falla. Móðir barns á leikskólanum segist hafa verið grunlaus um rannsókn á starfsmanninum. Hún hafi fyrst heyrt af málinu í tölvupósti frá Akureyrarbæ. „Það fréttu þetta eiginlega allir á föstudaginn þegar við fengum tölvupóstinn. Maður vissi ekkert hvað var verið að tala um,“ segir hún. Vegna þess hversu viðkvæmt málið er vill móðirin ekki koma fram undir nafni. Fátt um svör og enginn axlað ábyrgð Samkvæmt heimildum fréttastofu urðu umræður í hópnum Mæðratips á Facebook um málið fyrir helgi meðal annars til þess að Akureyrarbær ákvað að taka það upp að nýju. Foreldrar og forráðamenn voru boðaðir á upplýsingafund síðdegis í gær. Fundinn sátu stjórnendur leikskólans, fulltrúar bæjarins, lögreglu og barnaverndar og sérfræðingur á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Móðirin segir að á fundinum hafi málið lítið verið rætt. Áherslan hafi verið lögð á hvernig ætti að tala við börn til þess að komast að því hvort þau hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi. „Það er ekki fyrr en einhver segir: Er í alvörunni enginn sem er að fara að koma hérna upp og biðjast afsökunar á því að við höfum ekki fengið upplýsingar fyrr? Þetta er glatað dæmi að við erum að fá upplýsingar einu og hálfu ári seinna.“ Hún segir að fátt hafi verið um svör og enginn hafi gengist við ábyrgð. Þá hafi þeirri spurningu heldur ekki verið svarað, um af hverju starfsmanninum hafi ekki verið vikið úr starfi um leið og tilkynning um meint brot hafi borist barnavernd. „Þau sögðu á fundinum að það hefði ekki verið til neitt sérstakt verklag á þessum tíma. Það er ekki í lagi. Og það er heldur ekki í lagi að einhver sé tilkynntur fyrir kynferðisbrot gegn barni og fái að vera enn þá inni á leikskóla starfandi. Þú vinnur ekki í banka og stelur pening og færð samt enn að vera í bankanum á meðan verið er að dæma í málinu.“ Gagnrýnir Akureyrarbæ fyrir aðgerðarleysi Móðirin segir mikla reiði meðal foreldra, sem margir hafi farið út af fundinum með fleiri spurningar en var svarað. „Auðvitað var maður í sjokki og ég held að allir foreldrar séu í sjokki. Og maður fer að hugsa: Ætli mitt barn hafi lent í honum? Og ég á vinkonur sem eru í nákvæmlega sömu stöðu.“ Akureyrarbær hyggst fara yfir verklag sitt og innri ferla vegna málsins. Þá ætlar sveitarfélagið að óska eftir því við lögreglu að málið verði tekið aftur til rannsóknar, reynist forsendur fyrir því, til þess að draga úr óvissu um atvik og niðurstöður fyrir foreldra og starfsfólk. Móðirin segist þess fullviss að aldrei hafi staðið til að upplýsa foreldra um málið. „Það var spurt á fundinum: „Hefðum við fengið að vita þetta ef þetta hefði ekki komið upp á Mæðratips?“ Við fengum þau svör: „Ég er ekki viss um það.““ Þetta svar bæjarins sé óásættanlegt. Hún gagnrýnir aðgerðarleysi í málinu og segir viðbrögð Akureyrarbæjar koma of seint. „Maður er svo reiður enn þá yfir hinu að maður veit eiginlega ekki hvað á að segja yfir því sem þau eru að reyna að gera núna. Það er alltof seint að reyna að koma með einhverjar lausnir einu og hálfu ári síðar. Og hvað ef ekki hefði komist upp um þetta mál? Hefði ekki neitt verið gert?“

Share this article