Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Eftirtektarverður árangur í lestrarkennslu í Rimaskóla

  • What: Description of a reading instruction method in a school
  • Impact: Educational development
Read Full Article →

Nemendur í fyrsta bekk í Rimaskóla í Grafarvogi eru öll orðin læs. Natalía Hallsdóttir, kennari barnanna, þakkar það góðri lestrarkennsluaðferð og samvinnu við foreldra. PALS lestraraðferðin var þróuð í Bandaríkjunum og er nú notuð í fyrsta sinn með yngstu nemendunum í Rimaskóla. Í PALS eru nemendur paraðir saman út frá lestrarfærni. Kennari leggur inn ákveðnar æfingar áður en nemendur lesa til skiptis upp fyrir hvor annan. Börnin leiðrétta hvort annað og hrósa þegar vel er gert. Læsi og lesskilningi barna og ungmenna hefur hrakað hér á landi síðustu ár þrátt fyrir ýmsar aðgerðir til að sporna við þeirri þróun. PALS hefur verið notað við lestrarkennslu hér á landi í mörg ár en það er ljóst að árangurinn í Rimaskóla er til fyrirmyndar.

Share this article