Jafnaðarmannaflokkur Mette Frederiksen fékk 21,9 prósent atkvæða í þingkosningunum sem fram fóru í Danmörku í gær. Flokkurinn er því enn stærstur og fékk 38 sæti en hlaut þó sögulega slæma kosningu og missti 12 þingsæti. Svo slæma kosningu hefur flokkurinn ekki hlotið síðan 1903, samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins DR , um kosningarnar. Frederiksen sagði í ræðu sinni að loknum kosningunum að hún væri tilbúin að halda áfram sem forsætisráðherra en að það væri ekki margt sem bendi til þess að stjórnarmyndunarviðæður verði auðveldar. Hún sagði að Danmörk þurfi á stöðugri og hæfri ríkisstjórn að halda og að Jafnaðarmannaflokkurinn sé tilbúinn til taka forystuna í ríkisstjórn. Frederiksen sagði að hið pólitíska landslag væri að breytast í Danmörku og dönsk stjórnmál væru að byrja að líkjast æ meira stjórnmálum annarra evrópskra landa, með fleiri flokkum og meiri núningi. Lars Løkke Rasmuseen, leiðtogi miðjuflokksins Moderaterne, útilokar ekki samstarf við Jafnaðarmannaflokkinn og Venstre en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, vill ekki vinna með Jafnaðarmönnum, svo miðjustjórn er ekki möguleg.