Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrstu fundir mjög flókinna stjórnarmyndunarviðræðna að baki

Read Full Article →

Stjórnarmyndunarviðræður hófust formlega í Danmörku í morgun með fundum Mette Frederiksen forsætisráðherra og formönnum annarra flokka sem fengu menn kjörna á danska þingið í kosningunum á þriðjudag. Jafnaðarmannaflokkur Frederiksen galt afhroð og fékk sína verstu kosningu í meira en hundrað ár. Þrátt fyrir það fékk flokkurinn flest atkvæði og formaðurinn því með stjórnarmyndunarumboð frá konungi. Róttæki vinstriflokkurinn (sem er miðju-hægriflokkur og hvorki róttækur né vinstriflokkur) segist styðja Frederiksen og tilkall hennar til forsætisráðherrastólsins. Það gerir Sósíalíski þjóðarflokkurinn sömuleiðis. Frederiksen og Jafnaðarmannaflokkur hennar keyrðu sína kosningabaráttu mikið til á loforðum um auðlegðarskatt, sem flokkar í hægriblokk danskra stjórnmálaflokka styðja fæstir. Erfitt yrði fyrir hana að mynda stjórn yfir miðju og til hægri án þess að gefa það loforð upp á bátinn. Frederiksen getur sömuleiðis ekki myndað hreina vinstristjórn þar sem hvorki vinstri- né hægriblokkinn fengu nógu marga þingmenn til þess að mynda meirihluta. Lars Løkke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi miðjuflokksins Moderaterne, sem tilheyrir hvorki rauðu vinstriblokkinni né bláu hægriblokkinni, er því í lykilstöðu við samningaborðið. Erfitt gæti reynst að mynda ríkisstjórn án hans. Rasmussen sagði við danska ríkisútvarpið í dag að nú færi í hönd atburðarás sem enginn vissi hvernig myndi enda. Hann og flokkur hans gengju því galopnir inn í viðræðurnar. Spurður hvort hann ætlaði að ræða við formenn annarra flokka samhliða formlegri viðræðum af hálfu Frederiksen, sagðist hann ætla að virða það að hún væri með stjórnarmyndunarumboðið eins og er. Spurður hvort hann styddi að varnarmálaráðherrann og formaður Venstre, Troels Lund Poulsen, fengi stjórnarmyndunarumboð ef Frederiksen mistækist, sagði hann of snemmt að svara því.

Share this article