Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dróni frá Rússlandi sprakk í Lettlandi og annar olli skemmdum í Eistlandi

Read Full Article →

Tveimur drónum var flogið frá Rússlandi að Eistlandi og Lettlandi í morgun. Annar sprakk í Lettlandi án þess að valda skemmdum eða slasa fólk. Hinn olli skemmdum á orkuveri í Eistlandi. Lettneski flugherinn varð þess var í nótt að dróna var flogið yfir landamærin frá Rússlandi. Skömmu síðar heyrðist sprenging í Krāslava-héraði. Lögreglumenn, hermenn og landamæraverðir voru sendir á vettvang og fundu brak úr dróna. Yfirvöld segja að engin hætta steðji að almenningi eða innviðum, enginn særðist og engar skemmdir hlutust af. Nokkrum klukkustundum fyrr, upp úr miðnætti, urðu Lettar þess varir að dróna var flogið inn í lofthelgi landsins frá Belarús. Flugherinn brást við og þá var drónanum flogið inn í rússneska lofthelgi. Eistnesk yfirvöld greindu frá því í dag að dróni hefði valdið skemmdum á turni Auvere-orkuversins. Drónanum var flogið yfir landamæri Eistlands og Rússlands. Enginn slasaðist.

Share this article