Íbúar á þremur svæðum í Austur-Lettlandi fengu viðvörunarskilaboð send í farsíma sína um á fimmta tímanum í morgun þar sem varað var við mögulegri ógn. Lettneska ríkisútvarpið LSM greinir frá. Annar dróninn féll í Rēzekne og lenti á tómum olíutanki. Leit stendur enn yfir að hinum drónanum. Yfirvöld í sveitarfélögunum Rēzekne og Ludza hafa fellt niður kennslu í öllum skólum í sveitarfélögunum í dag vegna drónanna. Drónarnir flugu inn í lettneska lofthelgi frá Rússlandi en óljóst er hver uppruni þeirra er. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem drónar fljúga inn í lofthelgina. Úkraínumenn skutu hundruðum dróna að Rússlandi í nótt. Rússar sögðust hafa skotið 350 slíka dróna niður. Sams konar viðvörun var einnig gefin út á sunnudaginn og 25. mars þegar erlendur dróni kom inn í lettneska lofthelgi frá Rússlandi og hrapaði til jarðar í Kraslava-héraði. Það var síðar staðfest að dróninn var úkraínskur og hafði hugsanlega beinst að rússneskum skotmörkum við Finnlandsflóa en hefði villst af leið. Það gæti einnig verið raunin nú.