Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Varari um sig og óttast um öryggi sitt

Read Full Article →

Innlent | mbl | 25.3.2026 | 8:30 Varari um sig og óttast um öryggi sitt Frá æfingu sérsveitar ríkislögreglustjóra. Heyra má á Fjölni að áhyggjur lögreglumanna snúi að stórum hluta að erlendum glæpahópum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál Kristrún fundaði með leiðtogum Norðurlanda og Kanada Vilja aukið samstarf í varnarmálum » Fleiri tengdar fréttir Íslenskir lögreglumenn eru varari um sig í dag og óttast jafnvel um öryggi sitt. Þeir sækja ekki í átök og vilja vera venjulegt fólk þegar þeir klæðast ekki lögreglubúningnum. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, segir að bæði sé skipulögð glæpastarfsemi sýnilegri á Íslandi í dag sem og vopnaburður og vísar hann þar helst til hnífaburðar en hnífur sé að verða staðalbúnaður á götum borgarinnar. „Það hafa verið gerðar hópárásir reglulega en mér heyrist ganga nokkuð vel hjá lögreglu í dag að takast á við þennan veruleika.“ Fjölnir bendir á að brotamönnum sé í auknum mæli vísað úr landi og oft út fyrir Schengen-svæðið, sem virðist skila árangri. Hann segir þá upplifa meiri refsingu og telur að almenn ánægja ríki með það. Einnig hafi komum erlendra ríkisborgara fækkað til landsins sem og málum þar sem leitað er að fólki í ólöglegri dvöl. Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að hluti þeirra manna sem handteknir voru eftir grófa líkamsárás í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík væri grunaður um að tengjast vígasamtökum Hamas. Í farsímum þeirra fannst myndefni sem sýnir þá meðhöndla fjölskotariffla af gerðinni AK-47. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir þessu frá lögreglumönnum sem séð hafa myndefnið en vilja ekki koma fram undir nafni. Frétt af mbl.is Hamas-liðar á Höfðatorgi Áhyggjur af erlendum glæpahópum Heyra má á Fjölni að áhyggjur hans fólks snúi að stórum hluta að erlendum glæpahópum. Segir hann dæmi um að einstaklingar komi til landsins í skamman tíma, starfi í skipulagðri brotastarfsemi og hverfi svo á braut, aðeins til að vera leystir af hólmi af öðrum. Mynstur sem þekkist víðar á Norðurlöndum og hefur verið nefnt í samhengi við svokallað „sænskt ástand“. Einstaklingar með norræn ríkisföng ferðast óhindrað til landsins þrátt fyrir tengsl við glæpahópa með rætur annars staðar. Rafvopn lögreglu hafa að sögn Fjölnis reynst áhrifarík og segir hann oft nægja hótun um beitingu til að stöðva hættulegar aðstæður. Á sama tíma hafa lögreglumenn kallað eftir harðari viðbrögðum við ofbeldi gegn lögreglu, þar sem þeir telja refsingar ekki endurspegla alvarleika brotanna. Rafvopn sannað gildi sitt Hvað með vopnaburð? Óttast lögreglumenn um eigið öryggi? „Það virðist vera að allir séu alla vega með hníf. Meira að segja unglingsstrákar í strætó. Það virðist bara vera orðinn staðalbúnaður og það voru nú rökin fyrir því að lögreglan fékk þessi rafvopn á sínum tíma. Við sjáum á tölum að það hefur þrælvirkað. Það þarf oft ekki að beita vopninu, nóg er að hóta að beita því til að róa ástandið og menn sleppa hnífnum. Þeir vilja ekki fá raflost. Það var ákall lögreglumanna að fá rafvopn til að geta haldið fjarlægð frá vopnuðu fólki, hvort sem það var með hníf, kylfur eða annað.“ Albanir sem skipta fólki inn eins og hentar Hefur lögregla orðið vör við aukna glæpi hópa af ákveðnu þjóðerni eða frá ákveðnum svæðum? „Það væri náttúrulega helst Albanía. Þeir eru hérna og búið að vera stórmál út af. Þetta mál þarna á Raufarhöfn er tengt Albaníu,“ segir Fjölnir og vísar þar til umfangsmikilla aðgerða lögreglu vegna fíkniefnaframleiðslu. „Þeir virðast bara geta skipt inn fólki hérna eins og þeim hentar.“ Fjölnir segir það oft svo að þegar stór hópur frá ákveðnu landi flytji til annars lands komi glæpahóparnir á eftir því þeir ætli ekki að láta fólkið sleppa undan sér. „Þeir vilja fá sinn verndartoll og allt saman. Það er fullt af af Palestínumönnum hér sem óttast einhverja glæpamenn og eins með fólk frá Venesúela. Þeir eru að herja á eigin þjóð í komulandinu. Alveg eins og með þetta Víetnam-mál, hann Quang Le var aðallega að kúga Víetnama.“ Þú nefndir sérstaklega albanska glæpahópa, hafa þeir verið kortlagðir hér á landi? „Greiningardeildin hefur gert það og fíknó. Það eru einhverjir sem stjórna þarna en það er náttúrulega eins og þú þekkir í þessu, það er alltaf erfiðast að ná í efsta lagið.“ Tengdar fréttir Varnarmál Íslands Ný verslun opnuð á varnarsvæðinu Íslendingar ræddu við Þjóðverja um varnarmál Undirrituðu yfirlýsingu um öryggis- og varnarmál Kristrún fundaði með leiðtogum Norðurlanda og Kanada Vilja aukið samstarf í varnarmálum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skellur fyrir Arsenal Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Beint: Þorgerður Katrín svarar utanríkismálanefnd Hættustigi aflýst á Seyðisfirði Varari um sig og óttast um öryggi sitt Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leita til ríkislögreglustjóra vegna vagna Strætó Hryðjuverkamálið á dagskrá um miðjan maí Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Starfsfólk sé ekki eitt með barni Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Óvíst um afdrif umsóknar „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Nýjast á mbl.is » Skellur fyrir Arsenal Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst Beint: Þorgerður Katrín svarar utanríkismálanefnd Hættustigi aflýst á Seyðisfirði Varari um sig og óttast um öryggi sitt Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert ESB-ummæli Þorgerðar í brennidepli á Alþingi Bandaríkin afhjúpa áætlanir um tunglbækistöð Fullkláruðum óseldum íbúðum fjölgað gríðarlega Hamas-liðar á Höfðatorgi Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Óvíst um afdrif umsóknar „Erum að sjá jarðhitakerfið endurnýja sig“ Telja bandaríska ríkið skulda sér Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar

Share this article