- What: Article discusses drug-related crimes in Iceland
- Impact: Relevant to law enforcement and public safety
Fíkniefnamál halda áfram að vera meðal stærstu mála lögregluyfirvalda á Íslandi. Þeim hefur fækkað hvað varðar vörslu og neyslu en málum sem varða sölu, dreifingu og inn- og útflutning hefur fjölgað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu embættis greiningardeildar ríkislögreglustjóra um innra öryggi Íslands 2026. Markmið skýrslunnar, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi, er að veita upplýsingar um stöðu Íslands í kjölfar þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á umhverfi öryggismála í Evrópu undanfarin ár. Breytingar á öryggisumhverfi landsins Í skýrslunni er fjallað um innra öryggi Íslands út frá sjónarhóli löggæslu, með tilliti til verkefna og ábyrgðarsviða sem heyra undir embætti ríkislögreglustjóra. Þar segir að ytra öryggisumhverfi landsins hafi tekið breytingum undanfarin ár sem hafi í för með sér áhrif á innra öryggi. Hvað er innra öryggi? Innra öryggi snýst um að ríki geti haldið uppi lögum og reglu, verndað borgarana og viðhaldið trausti innan samfélagsins. Innra öryggi er eitt meginhlutverka embættis ríkislögreglustjóra. Í skýrslunni er að finna yfirlit yfir stöðu afbrota og öryggiskenndar í íslensku samfélagi í upphafi árs 2026. Yfirlitið byggir á afbrotatölfræði lögreglu og niðurstöðum þolendakannana sem er ætlað að varpa ljósi á bæði skráð brot og atvik sem ekki koma til tilkynningar. Fíkniefnabrot eru á meðal þeirra málaflokka sem greint er frá í yfirlitinu. Þar kemur fram að fíkniefnabrot séu áfram einn stærsti málaflokkur lögreglu. Þeim hafi fækkað hvað varði vörslu og neyslu, en málum sem varði sölu, dreifingu og inn- og útflutning hafi fjölgað. Lögðu hald á fimmfalt meira magn ketamíns en árið áður Fram kemur að árið 2025 hafi toll- og löggæsla lagt hald á yfir 800 kíló af fíkniefnum og tæplega 38 þúsund stykki af plöntum og töflum sem sé met. Haldlagt magn kókaíns og marijúana hafi aukist mest. Þá virðist Ísland fylgja nágrannalöndunum að nokkru leyti í þróun hvað varði ópíóða og fölsuð lyf. Magn ketamíns hefur vaxið einna mest af öllum lyfjum síðustu ár, en árið 2025 var lagt hald á fimmfalt meira af efninu en árið áður, eða alls 28 kg. Samhliða því hefur meira magn ketamíns einnig mælst bæði í skólpi og lífssýnum. Á sama tíma hefur dregið úr magni oxycontins og benda tölur almennt til þess að aukning hafi orðið í notkun á fölsuðum lyfjum og kvíðastillandi efnum, breytilegt getur verið hvert virka efnið er. 40% upplifa öryggi í miðbænum Í yfirliti skýrslunnar er einnig gerð grein fyrir öryggiskennd almennings á Íslandi. Þar segir að almennt upplifi yfir 80% Íslendinga sig mjög eða frekar örugga í sínu hverfi eða byggðarlagi þegar þeir eru einir á gangi í myrkri. Hins vegar segjast einungis um eða yfir 40% svarenda finna fyrir öryggi í miðborg Reykjavíkur að kvöldi til. Samkvæmt skýrslunni teljast flest hegningarlagabrot sem lögregla sinnir árlega til auðgunarbrota. Með auðgunarbroti er átt við afbrot sem framin eru í þeim tilgangi að hagnast fjárhagslega. Árlega eru um 5.600 auðgunarbrot skráð, einkum þjófnaðir og innbrot, og verða um 7% landsmanna fyrir slíkum brotum á ári hverju. Auk þessa er áætlað að 5-6% landsmanna verði fyrir net-eða fjársvikum árlega og hafa slíkar tegundir svika nær tvöfaldast frá árinu 2025.