Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Perúmaður á áttræðisaldri ákærður fyrir kókaínsmygl

  • What: A Peruvian man in his 70s has been charged with smuggling over 2.5 kilograms of cocaine into Iceland.
  • Impact: The cocaine, with a high concentration, was intended for distribution within the country.
Read Full Article →

Perúmaður á áttræðisaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa staðið að innflutningi á rúmum 2,5 kílóum af kókaíni. Í ákæru frá skrifstofu héraðssaksóknara segir að kókaínið, með styrkleika 86-88%, hafi verið ætlað til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Þar segir að ákærði hafi flutt efnin til landsins, falin í ferðatösku, með farþegaflugi frá Amsterdam 20. nóvember 2025. Ákærði flutti síðan ferðatöskuna í hótelherbergi á Hótel Cabin í Borgartúni til geymslu þar til kvöldið á eftir. „Þá kom tilgreindur aðili á hótelið og veitti fíkniefnunum viðtöku,“ segir í ákærunni. Sá flutti fíkniefnin í íbúð í Bríetartúni þar sem lögregla lagði hald á þau. Ákærði fékk greiddar 8.000 evrur fyrir innflutning kókaínsins. Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að fíkniefnunum, samtals 2.581 grammi af kókaíni, Samsung-farsíma sem var notaður til að fremja brotið og evrunum verði haldið eftir.

Share this article