Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslendingar meðal þeirra handteknu

  • What: Icelandic citizens were among those arrested in a coordinated police operation across three countries related to cocaine smuggling from South America to Europe.
  • Impact: The operation dismantled a criminal organization involved in international drug trafficking.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 10.2.2026 | 14:02 | Uppfært 15:34 Íslendingar meðal þeirra handteknu Málið hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu í tæpt ár með aðkomu og aðstoð Tollgæslu og náði hámarki með samhæfðum alþjóðlegum aðgerðardegi þann 4. febrúar. Ljósmynd/Aðsend Íslenskir ríkisborgarar voru á meðal þeirra sem voru handteknir í samræmdum aðgerðum lögreglu þriggja landa í síðustu viku þar sem leyst voru upp glæpasamtök sem stóðu að kókaínsmygli frá Suður-Ameríku til Evrópu. Um er að ræða samræmda rannsókn yfirvalda á Íslandi, í Litháen og á Spáni, með stuðningi Europol og Eurojust. Málið hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu í tæpt ár með aðkomu og aðstoð tollgæslu og náði hámarki með samhæfðum alþjóðlegum aðgerðardegi þann 4. febrúar. Þá voru 24 voru handteknir; 11 á Íslandi, sex í Litháen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Frétt af mbl.is Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Rannsókn sem hófst fyrir um ári síðan „Þetta er brotahópur sem við vorum meðvituð um, allavega einhverja úr honum. Svo kemur upp mál í febrúar í fyrra sem að færir okkur á [þessar] slóðir og þannig þræðum við okkur inn í þetta og það í rauninni varð ekkert aftur snúið. Við fórum að tengja fleiri mál og svo koma upp mál á meðan við erum í þessu skipulagi sem er þessi rannsókn sem nær hámarki í síðustu viku,“ segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill lögreglustjóra hjá lögreglunni á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Kókaínmet á Keflavíkurflugvelli Alda Hrönn Jóhannsdóttir. Ljósmynd/Júlíus Sigurjónsson „Vel í stakk búin til þess að hafa frumkvæði“ Aðspurð segir hún samvinnu við Europol og Eurojust hafa svo formlega hafist í kringum maí, júní. „Þetta sýnir okkur að við, á litla Íslandi, erum vel í stakk búin til þess að hafa frumkvæði að því að klukka önnur lönd með það sem er að gerast. Við erum ekki alltaf bara að elta. Af því að við erum lítil og höfum mikið af upplýsingum þá er auðvitað hluti af því að við getum líka haft frumkvæði að því að bera kennsl á og jafnvel uppræta svona alþjóðlega skipulagða brotahópa.“ Íslendingar á meðal þeirra handteknu Eins og fyrr segir voru 11 manns handteknir á Íslandi í aðgerðum lögreglunnar. Aðspurð segir Alda að íslenskir ríkisborgarar séu á meðal þeirra handteknu en segir að ekki sé unnt að gefa upp hve margir þeir eru á þessu stigi rannsóknarinnar. Þá bendir hún á að brotastarfseminni hafi samt sem áður verið stjórnað utan landsteinanna. Um næstu skref segir hún lögregluna setja mikinn þunga í að ljúka málinu með þeim hætti að aðilar verði látnir sæta refsingu. Málið muni fara til héraðssaksóknara sem taki svo ákvörðun um ákæru. „Þetta er stórfellt brot á lögum um ávana- og fíkniefni og í rauninni stórfellt fíkniefnalagabrot samkvæmt almennum hegningarlögum og peningaþvætti og svo líka skipulögð brotastarfsemi.“ Tómas hetjan hjá toppliðinu West Ham - Man. Utd, staðan er 1:0 Klúður tímabilsins á Brúnni – Tottenham í miklu veseni Frábær endurkoma Tindastóls Elliði fór á kostum í stórleik Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna að ESB Hefur fjármagnað innrásina í Úkraínu Fleira áhugavert Afturköllun verndar ekki tryggð Samkomulag loks í augsýn rúmum sjö árum síðar Kastaði farsíma í lögreglubíl Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fólksbíll lenti aftan á gröfu Reynisfjara tekur stakkaskiptum Margrét segir af sér sem rektor Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Deila tilkynningu írsku lögreglunnar Goddur jarðsunginn í dag #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Látinn eftir slys á Miklubraut „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Kjartan úr lífshættu en mikið slasaður Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Starfsfólk bráðamóttökunnar smitað af berklum Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Tómas hetjan hjá toppliðinu West Ham - Man. Utd, staðan er 1:0 Klúður tímabilsins á Brúnni – Tottenham í miklu veseni Frábær endurkoma Tindastóls Elliði fór á kostum í stórleik Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna að ESB Hefur fjármagnað innrásina í Úkraínu Fleira áhugavert Að minnsta kosti sex hlíft með yfirstrikunum „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Ók í hláturgasvímu á ólétta konu Tollar Trumps skaða franskan vínútflutning Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fólksbíll lenti aftan á gröfu Reynisfjara tekur stakkaskiptum Margrét segir af sér sem rektor Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Deila tilkynningu írsku lögreglunnar Goddur jarðsunginn í dag #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Látinn eftir slys á Miklubraut „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Kjartan úr lífshættu en mikið slasaður Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Starfsfólk bráðamóttökunnar smitað af berklum Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi

Share this article