- What: Europol coordinated an operation across five countries, including Iceland, to dismantle a drug trafficking ring.
- Impact: 24 individuals were arrested, including 11 in Iceland, for smuggling cocaine from South America to Europe.
Lögreglustofnanir víða í Evrópu tóku þátt í að uppræta fíkniefnahring sem smyglaði miklu magni kókaíns milli landa. 24 voru handteknir í aðgerðunum, þar á meðal ellefu á Íslandi. Sex voru handteknir í Litáen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Europol tilkynnti um aðgerðirnar í dag. Þar kemur fram að glæpagengi sem teygði anga sína frá Suður-Ameríku til Evrópu hafi verið upprætt. Það notaði burðardýr til að smygla kókaíni milli landa og reyndi þannig að koma í veg fyrir að lögregla kæmist á snoðir um skipuleggjendur smyglsins. Smyglað frá Suður-Ameríku til Íslands í gegnum Spán Lögregla á Íslandi, Litáen og Spáni rannsakaði glæpagengið í samvinnu við Europol og Eurojust. Sú rannsókn leiddi í ljós að kókaíni var smyglað frá Suður-Ameríku til Íslands í gegnum Spán. Alla jafna voru fíkniefnin í eins kílóa pakkningum sem faldar voru innan um aðrar vörur í gámum. 24 voru handteknir í samræmdum aðgerðum Europol gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Ellefu þeirra voru handteknir á Íslandi. Glæpagengið smyglaði kókaíni frá Suður-Ameríku til Íslands í gegnum Spán. Afraksturinn þvættaður í Litáen Talið er að gengið hafi selt fíkniefni fyrir fjórar milljónir evra, andvirði um 600 milljóna króna, með smygli sínu. Lögregla telur að afraksturinn af fíkniefnaviðskiptunum á Íslandi hafi verið þvættaður með kaupum á fasteignum og öðrum eignum í Litáen. Ráðist var til atlögu gegn glæpagenginu á miðvikudag í síðustu viku, 4. febrúar. Þá voru 24 handteknir, nærri helmingur þeirra hérlendis. Eins árs rannsókn Lögregla á Íslandi og í Litáen vann að rannsókn smyglsins framan af en naut síðan aðstoðar Europol og Eurojust, stofnunar Evrópusambandsins um samstarf við baráttu gegn glæpum. Eftir mikil fundahöld lögreglustofnana víða um Evrópu beindust sjónir að grunuðum glæpamönnum í Belgíu, Danmörku, Litáen, á Íslandi og Spáni. Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum segir að unnið hafi verið að rannsókn málsins í tæpt ár áður en hún náði hámarki með samhæfðum aðgerðum lögreglu í síðustu viku. Þrír íslenskir lögreglumenn fóru til Spánar vegna þeirra aðgerða. Farið var í húsleit á fjölda staða og margir munir og raftæki voru haldlagðir auk peninga, rafmyntaveskis, greiðslukorta og armbandsúra. Lögregla vinnur að því að afrita og rannsaka innihald síma og annarra rafrænna muna sem talið er að hafi verið notuð við skipulagningu brotanna. Fréttin hefur verið uppfærð.