- What: A man was seriously assaulted at a Þorrablót party.
- Impact: The attacker was arrested and the police are investigating the incident.
Maður varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Þorrablóti HK í lok janúar og var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. DV greindi fyrst frá. Þetta staðfestir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglu. Árásarmaðurinn var handtekinn og sat í gæsluvarðhaldi í tvo sólarhringa. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku. Elín Agnes segir málið til rannsóknar hjá lögreglu en að öðru leyti vildi hún ekki tjá sig frekar. Aðspurð sagðist hún ekki vilja fara út í það hvernig þeim sem varð fyrir árásinni reiðir af eða hvort hann sé enn á spítala.