Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Víða væntingar um hærri vexti og hægari um­svif

  • What: Icelandic central bank discusses financial system resilience
  • Impact: Highlights the need for cashless payment systems amid global economic uncertainty
Read Full Article →

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands varar við að afleiðingar óvissu í alþjóðlegum efnahagsmálum, m.a. vegna stríðsátaka við Persaflóa gætu með tímanum reynt á fjármálastöðugleika. „Stríðsátök við Persaflóa hafa leitt til framboðstruflana og verðhækkana á olíu og öðrum hrávörum. Óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum hefur aukist enn frekar, verðbólguhorfur versnað og víða eru væntingar um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif,“ segir í yfirlýsingu sem nefndin birti í morgun. „Afleiðingar þessa gætu með tímanum reynt á fjármálastöðugleika.“ Þörf á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Í yfirlýsingunni leggur fjármálastöðugleikanefnd áherslu á að auka þurfi viðnámsþrótt kerfislega mikilvægra innviða í ljósi vaxandi spennu á alþjóðavettvangi og mögulegrar fjölþáttaógnar. „Mikilvægt er að auka fjölbreytni í greiðsluleiðum hér á landi og að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst.“ Þjóðarbúið standi vel til að mæta áskorunum Nefndin segir þjóðarbúið standa að mörgu leyti vel til þess að mæta þessum áskorunum „ekki síst vegna þétts taumhalds eiginfjárkrafna á viðskiptabanka og lánþegaskilyrða við íbúðakaup“. Fjármálakerfið hér á landi standi traustum fótum og sé vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum. Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka sé sterk og aðgengi þeirra að markaðsfjármögnun greitt. „Þeir hafa síðustu misserin endurfjármagnað erlendar markaðsskuldir á hagstæðum kjörum og til lengri tíma en áður.” Þá séu skuldahlutföll heimila og fyrirtækja lág og hafa farið lækkandi, vanskil séu lítil og aðrir greiðsluerfiðleikar virðist óverulegir. Skuldastaða ríkissjóðs sé hófleg, ytri staða þjóðarbúsins sterk og gjaldeyrisforði Seðlabankans rúmur. „Þá hefur verið ágætt jafnvægi í viðskiptum við útlönd sem endurspeglast í stöðugleika á gjaldeyrismarkaði. Mikilvægt er að viðhalda viðnámsþrótti þjóðarbúsins gagnvart óvissu í alþjóðamálum.“ Fjármálastöðugleikanefnd ákvað að halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Sjá einnig Þurfi áfall svo aukinn verði lækkaður Húsnæðisverð enn hátt þrátt fyrir raunverðslækkun Nefndin segir húsnæðisverð enn hátt á flesta mælikvarða þrátt fyrir raunverðslækkun upp á síðkastið. „Íbúðum á sölu hefur fjölgað og lengri tíma tekur að selja eignir en áður, ekki síst nýbyggingar. Skuldir byggingageirans við bankakerfið hafa vaxið síðustu misseri en vanskil eru enn lítil. Hátt vaxtastig og langur sölutími gera það að verkum að lánveitendur þurfa að vera vakandi fyrir aukinni áhættu í geiranum.“ Sjá einnig Raunverð íbúða lækkað um 2,7%

Share this article