Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Beint: Fundur fjár­málastöðug­leika­nefndar

  • What: Iceland's financial stability committee discusses risks from global economic uncertainty.
  • Impact: Emphasis on improving payment systems and financial resilience.
Read Full Article →

Fjár­málastöðug­leika­nefnd Seðla­banka Ís­lands varaði við því í morgun að af­leiðingar óvissu í alþjóð­legum efna­hags­málum, m.a. vegna stríðsá­taka við Persaflóa, gætu með tímanum reynt á fjár­málastöðug­leika. Fjár­málastöðug­leika­nefnd ákvað að halda gildi sveiflujöfnunar­aukans óbreyttu í 2,5% í samræmi við stefnu nefndarinnar um beitingu aukans. Í yfirlýsingunni leggur fjármálastöðugleikanefnd áherslu á að auka þurfi viðnámsþrótt kerfislega mikilvægra innviða í ljósi vaxandi spennu á alþjóðavettvangi og mögulegrar fjölþáttaógnar. „Mikilvægt er að auka fjölbreytni í greiðsluleiðum hér á landi og að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst.“ Sjá einnig Beint: Fundur fjár­málastöðug­leika­nefndar Nefndin segir þjóðarbúið standa að mörgu leyti vel til þess að mæta þessum áskorunum „ekki síst vegna þétts taumhalds eiginfjárkrafna á viðskiptabanka og lánþegaskilyrða við íbúðakaup“. Nefndin sagði meðal annars í yfir­lýsingu sinni að húsnæðis­verð væri enn hátt á flesta mæli­kvarða þrátt fyrir raun­verðslækkun upp á síðkastið. Ás­geir Jóns­son seðla­banka­stjóri, Tómas Brynjólfs­son vara­seðla­banka­stjóri fjár­málastöðug­leika og Flóki Halldórs­son fram­kvæmda­stjóri fjár­málastöðug­leika­sviðs Seðla­bankans, sitja fyrir svörum um yfir­lýsingu nefndarinnar á blaða­manna­fundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt er að fylgjast fundinum með hér að neðan.

Share this article