Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndar að hækka stýrivexti á opnum fundi í húsnæði Seðlabankans kl 9:30. Beint streymi frá fundinum má nálgast neðst í fréttinni. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur, úr 7,25% í 7,5%. Þrír nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en tveir vildu hækka meginvexti um 0,5 prósentur. Í yfirlýsingu nefndarinnar er bent á að verðbólga hafi mælst 5,2% tvo mánuði í röð. Að nokkru leyti megi rekja það til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Þá hafi bæst við áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði í byrjun árs. „Undirliggjandi verðbólga hefur aukist og ekki verið meiri í ríflega ár. Verðbólguvæntingar eru jafnframt teknar að hækka.“ Þrír nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en tveir vildu hækka meginvexti um 0,5 prósentur. Beint streymi frá blaðamannafundi Ásgeirs og Þórarins má nálgast hér má nálgast hér að neðan: