Ársfundur Seðlabanka Íslands verður haldinn í húsakynnum Seðlabankans í dag kl. 16:00. Ávörp flytja Bolli Héðinsson, formaður bankaráðs Seðlabankans, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentur, upp í 7,5%, þann 18. mars síðastliðinn og gaf til kynna að vextir væru líklegir til að hækka frekar. Verðbólga hefur aukist úr 3,7% í 5,4% frá því í nóvember og atvinnuleysi í febrúar mældist 7,1% samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum Hagstofunnar. Sjá einnig „Þetta gerist ekki hjá nokkurri annarri þjóð“ Á kynningarfundi peningastefnunefndar í síðasta mánuði vöktu Ásgeir og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sérstaklega athygli á miklum launahækkunum á íslenskum vinnumarkaði á síðustu árum og sögðu þær hafa skapað þrýsting á innlendan þátt verðbólgunnar.