Bára Eyfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Samherja hf. Bára hefur starfað hjá Samherja um tveggja áratuga skeið og gegnt ábyrgðarstöðum á sviði fjármála þvert á samstæðuna. Samherji hf. er móðurfélag samstæðu Samherja en þar undir eru dótturfélögin Samherji Ísland ehf., sem sér um veiðar og vinnslu, sölufélagið Ice Fresh Seafood ehf. og Samherji fiskeldi ehf. sem stundar fiskeldi á landi. Samhliða ráðningu nýs fjármálastjóra Samherja hf. hafa fjármálasvið og upplýsingatæknisvið Samherja Íslands ehf. verið sameinuð undir stjórn Finnboga Reynissonar sem verður fjármálastjóri félagsins. Þá mun Jón Rafn Ragnarsson einbeita sér að fjármálastjórn Samherja fiskeldis ehf. en hann hefur verið fjármálastjóri samstæðu Samherja frá árinu 2016.