„Þessi sýning er afskaplega mikilvæg í okkar starfi,“ segir Unnur Inga Kristinsdóttir, sölustjóri hjá Ice Fresh Seafood, dótturfélags Samherja, um alþjóðlegu sjávarútvegssýninguna Seafood Expo Global í Barcelona sem hófst í morgun og stendur fram á fimmtudag. Fjölmörg íslensk fyrirtæki eiga fulltrúa á sýningunni. Sú stærsta sinnar tegundar Rætt er við Unni á heimasíðu Samherja. Þar kemur fram á á sýningunni sem sé sú stærsta sinnar tegundar í heiminum á sviði veiða, vinnslu og sölu sjávarafurða kynni fyrirtæki frá um níutíu þjóðlöndum vörur sínar, búnað og þjónustu í níu stórum sýningarhöllum. Básinn sé þétt setinn „Samherji og Ice Fresh Seafood eru að venju með stóran bás á sýningunni, þar sem tekið er á móti gestum frá öllum heimsálfum og afurðir kynntar. Ice Fresh Seafood er dótturfélag Samherja og sér um að selja afurðir félagsins og fleiri fyrirtækja,“ segir á samherji.is þar sem haft er eftir Unni að básinn sé þétt setinn. Markmiðið að skapa tækifæri og hámarka verðmætasköpun „Hérna hittir maður samstarfsfélaga og viðskiptavini alls staðar að úr heiminum og saman myndum við einstaka stemmingu svo eftir er tekið. Við mætum hingað árlega, vel undirbúið samheldið teymi. Markmiðið er að efla okkur enn frekar, hámarka verðmætasköpun, styrkja núverandi viðskiptasambönd og jafnframt að skapa ný tækifæri. Básinn okkar er glæsilegur og vel búinn með fundaraðstöðu og veitingar á tveimur hæðum. Kokkurinn töfrar fram framúrskarandi rétti úr okkar besta hráefni, sem við bjóðum stolt gestum okkar,“ segir Unnur í viðtalinu á heimasíðu Samherja. Lykilatriði fyrir að vera sýnileg „Markaðsaðstæður á heimsvísu eru krefjandi í augnablikinu og reynslan sýnir að þær geta breyst hratt með víðtækum áhrifum á heimshagkerfið. Íslensk fyrirtæki eru lítil í alþjóðlegu samhengi og standa frammi fyrir fjölbreyttum áskorunum til að viðhalda samkeppnishæfni. Til að tryggja sterka stöðu er lykilatriði fyrir okkur að vera sýnileg og hafa burði til að framleiða og afhenda okkar eftirsóttu afurðir fyrir kröfuharðan alþjóðamarkað. Þar þurfa allir þættir að vinna saman,“ segir Unnur einnig. Nánar má lesa um málið á samherji.is .