MULTIVAC, einn af leiðandi framleiðendum í pökkun og vinnslutækni, mun kynna nýjar og sjálfbærar lausnir fyrir fisk- og sjávarútveg á sýningunni Seafood Processing Global, sem fer fram í Barcelona dagana 21.–23. apríl. Áhersla MULTIVAC verður lögð á pökkunar- og meðhöndlunarlausnir sem bæta geymsluþol fisks og sjávarafurða, tryggja örugga meðhöndlun viðkvæmra afurða og auka aðdráttarafl vörunnar á sölustað. Lausnirnar miða jafnframt að bættri nýtingu auðlinda og aukinni hagkvæmni í framleiðslu. Meðal þess sem MULTIVAC mun sýna er TX 620 bakkalokunarvél, nett og hagkvæm pökkunarvél sem hentar vel breyttum aðstæðum í sjávarútvegi. Vélin er hönnuð með sjálfbærni að leiðarljósi, hefur litla plássþörf og getur, eftir notkun, starfað án þrýstilofts eða kælivatns. Hún styður fjölbreytt umbúðaefni, þar á meðal plast- og pappírsumbúða valkosti. Á bás MULTIVAC verður jafnframt kynnt lausn fyrir pökkun á t.d. rækjum í olíu, eða hrognum í samstarfi við GS Italia, þar sem fyllivélar eru sérsniðnar að hverri vöru og henta vel til vinnslu dælanlegra afurða, eins og hrogna, rækju eða skömmtun á hvers konar sósum. Einnig verður sýnd hin netta R 105 MF thermoform pökkunarvél, sem framleiðir hágæða MultiFresh™ vacuum skin umbúðir, meðal annars fyrir laxa bita. Vélin hentar sérstaklega vel minni fyrirtækjum eða framleiðendum sem þurfa mikinn sveigjanleika, án þess að fórna gæðum eða framsetningu. MULTIVAC mun að auki sýna sjálfvirka meðhöndlun viðkvæmra fiskafurða með H 244 robot röðun í bakka eða aðrar línupökkunarvélar, sem tryggir nákvæma, varfærna og hreinlega staðsetningu skammta í bakka, meðal annars fyrir lax. Í samstarfi við samstarfsaðila sinn, Handtmann, býður MULTIVAC einnig upp á samþættar framleiðslulínur sem ná yfir allt ferlið – frá vinnslu hráefna til endanlegrar pökkunar. Slíkar lausnir stuðla að meiri hagkvæmni, hærri hreinlætisstöðlum og betri nýtingu hráefna í fiskvinnslu. Fyrirtækið verður með bás í höll 3 (3DD601).