Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frumuræktaður túnfiskur kynntur á SENA

  • What: Lab-grown seafood introduced at SENA
  • Impact: New food technology gaining regulatory approval
Read Full Article →

Í fyrsta sinn í sögu SENA, sjávarútvegssýningarinnar í Boston, bættist við þriðji flokkur sjávarafurða sem kynntur var gestum og gangandi. Þeir tveir sem menn höfðu átt að venjast voru sjávarafurðir úr villtum fiski og eldisfiski og sá þriðji sem nú bætist við er frumuræktað sjávarfang. Leyfi í höfn á næstu vikum SeafoodSource vefritið segir frá því að BlueNalu, nýsköpunarfyrirtæki frá San Diego í Kaliforníu, hafi kynnt áform sín um markaðssetningu á túnfiski sem er frumuræktaður. Vitnað er í Lou Cooperhouse, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, sem fullyrðir að leyfi Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, fyrir markaðssetningu á afurðunum verði í höfn á næstu vikum. Hann bendir á að stofnunin hafi þegar sýnt fram á vilja til að samþykkja frumuræktaðar vörur. Það gerðist fyrst árið 2022 þegar Upside Foods í Berkeley í Kaliforníu var veitt leyfi til markaðssetningar á frumuræktuðu kjöti úr kjúklingi og Wildtype hafi fengið leyfi 2025 fyrir frumuræktuðum laxaafurðum. Á fínni veitingastaði Cooperhouse segir að fyrirtæki sitt búist fastlega við svipuðum niðurstöðum hvað túnfiskinn varðar sem gerir því kleift að hefja sölu á afurðum sínum. Fyrsta kastið ætlar BlueNalu að takmarka sig við sölu til veitingastaða í San Diego, veitingastaða sem eru áhugaverð blanda af fínni matargerð og úrvals sushi-stöðum. Að koma vörunni á matseðla veitingastaðanna geri þeim og BlueNalu kleift að fylgjast með viðtökunum og hafa áhrif hvernig fyrirtækið miðli vöru sinni. BlueNalu var stofnað 2017 og hefur vaxið úr litlu sprotafyrirtæki í margra milljóna dollara verkefni sem hefur laðað að fjárfestingar og samstarf við stórfyrirtæki. Hvaða biti sem er ræktaður Í framleiðsluferli BlueNalu eru ræktaðar frumur úr einangruðum fiskvefjum, í þessu tilfelli vef úr bláuggatúnfiski. Fyrirtækið getur einnig með frekari rannsóknum, ræktað vef úr hvaða hluta bláuggatúnfisksins sem er. Í tilfelli BlueNalu beinist ræktunin að verðmætasta kviðhluta túnfisksins, toro, sem er hæst verðlagður á veitingastöðum. Cooperhouse sagði að í upphafi BlueNalu hafi starfsemin snúist um að fínpússa tæknina að baki framleiðslunni. Þá hafði enginn áður ræktað fiskifrumur í þeim skala sem nauðsynlegur er í viðskiptalegu tilliti sem þýddi að það þurfti að finna lykilinn að því að skala framleiðsluna upp. „Til að skala upp framleiðsluna gátum við ekki reitt okkur á erfðatækni eða aðferðir sem aðrir nota eins og örflutningsefni sem eru millistig. Við komumst að því að þessar aðferðir henta ekki okkar tækni,“ segir Cooperhouse. Saku-skammtar Cooperhouse kvaðst ekki geta deilt upplýsingum um hvaða leið var farin en sagði þó að fyrirtækið hefði búið til ferli sem gerir því kleift að framleiða kviðstykki úr bláuggatúnfiski í stórum stíl og á kostnaði sem væri veitingastöðum viðráðanlegur. Eftirvænting er sögð ríkja innan veitingaþjónustunnar yfir því hvaða þýðingu vara BlueNalu gæti haft fyrir hágæða veitingastaði. Flestir þeirra þurfi að leita uppi hágæða bláuggatúnfisk sem er hausaður og slægður en óunninn að öðru leyti. Veitingastaðirnir þurfi því hæft og hátt launað starfsfólk til þess að fá þá hluta úr fisknum sem eiga að vera á matseðlinum. Framtíðarafurðir BlueNalu verða fáanlegar í fyrirfram ákveðnum saku-skömmtum sem eru jafnskornar, roð- og beinlausar rétthyrndar blokkir af hágæða túnfiski. Varan verður fáanleg allt árið um kring með fullkomnu samræmi í gæðum og stærð. BlueNalu hefur meira að segja fengið einkarétt fyrir notkun slagorðsins „Kviðstykki sem þú getur treyst“ (e. „Toro you can trust).

Share this article