Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði meðal vega sem verður lokað í nótt

Read Full Article →

Nokkrum vegum verður lokað í nótt vegna óveðursins sem gengur yfir landið á morgun. Hægt er að sjá lista yfir þá vegi hér fyrir neðan. Fólk er þó einnig hvatt til að fylgjast vel með veglokunum í nótt og í fyrramálið á vef Vegagerðarinnar . Búist er við hríðarveðri og stormi um allt landið og verður stórhríð suðvestantil og á miðhálendinu. Vegir sem verður lokað í nótt Hellisheiði, Þrengslum og Mosfellsheiði verður lokað klukkan 04:00 í nótt til klukkan 14:00 á morgun. Kjalarnesi og veginum undir Hafnarfjalli verður lokað frá klukkan 04:00 í nótt til klukkan 13:00 á morgun. Krísuvík, það er segja afleggjara frá Krísuvík að Reykjanesbraut verður lokað klukkan 03:00 í nótt fram til klukkan 13:00. Óvissustig á vegum Óvissustig verður á nokkrum vegum í nótt sem þýðir að þeir verða áfram opnir en gæti verið lokað með litlum fyrirvara. Óvissustig tekur gildi klukkan 05:00 í fyrramálið á Suðurstrandarvegi og gildir til hádegis. Þá tekur óvissustig gildi klukkan 06:00 í fyrramálið á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi til hádegis. Klukkan átta tekur óvissustig gildi á Lyngdalsheiði.

Share this article