Vonskuveðri er spá á stórum hluta landsins á morgun. Appelsínugul og gul viðvörun tekur gildi á öllu landinu í morgunsárið. „Það hvessir í nótt og fer að snjóa seint í nótt á sunnan- og vestanverðu landinu og snemma á morgun erum við með suðaustan fimmtán til tuttugu átta metrar á sekúndu á sunnan- og vestanverðu landinu með snjókomu, talsverðri mikilli snjókomu,“ segir Marcel De Vries, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. „Með þessu er líka skafrenningur sem veldur því að við erum með appelsínugular viðvaranir á Suðurlandi, höfuðborgarsvæðinu og Faxaflóa.“ Á norðan- og austanverðu landinu verður veður hægara, 15-23 metrar á sekúndu með snjókomu og skafrenningi en dregur úr ofankomu og vindi annað kvöld. Á vestanverðu landinu verða 15-25 metrar með hríð, skafrenningi og slæmu skyggni. Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi klukkan fimm í fyrramálið og appelsínugul upp úr sjö, og þá einnig á miðhálendinu. Þær falla úr gildi rétt eftir hádegi. Gul viðvörun verður í öðrum landshlutum fram eftir degi. Innanlands- og millilandaflug á áætlun Ekki verður ferðaveður á sunnan- og vestanverðu landinu og höfuðborgarsvæðinu til hádegis og gera má ráð fyrir talsverðum samgöngutruflunum. Ekki hefur verið ákveðið að fella niður flugferðir, samkvæmt upplýsingum frá Icelandair. Veðuraðgerðastjórn ISAVIA fundar með flugfélögum síðdegis og þá verður ákveðið hvernig flugi verður háttað á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Strætó má búast við talsverðri röskun á þjónustu ef veðurspár ganga eftir, sérstaklega í úthverfum höfuðborgarsvæðisins og á landsbyggðinni. Aðgerðarstjórn almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins fundaði í morgun vegna veðursins. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, deildarstjóri, segir að engar ráðstafanir hafi verið gerðar eða ákvarðanir teknar að svo stöddu varðandi niðurfellingu skólahalds leik- og grunnskóla. „Það eina sem skiptir máli í dag er að fylgjast með viðvörunum frá Veðurstofunni og eins með upplýsingum frá aðgerðastjórn, ef þær koma, og þá frá almannavörnum og fylgja þeim eftir,“ segir Þóra Kristín. „En það má svo sannarlega búast við röskunum. Núna skiptir máli að fara að festa niður hluti og undirbúa sig. En það sem skiptir mestu máli er að fylgjast með og hlusta þegar og ef viðvaranir koma.“ Þjórsárskóli og Flúðaskóli lokaðir á morgun Stjórnendur Menntaskólans við Hamrahlíð eru í viðbragðsstöðu vegna veðursins. Nemendur eru hvattir til að fylgjast vel með heimasíðu skólans og tölvupósti þar sem póstur verður sendur snemma morguns ef veðurspá gengur eftir. Þá verða Þjórsárskóli og Flúðaskóli lokaðir á morgun.