Þegar er tekið að hvessa á landinu. Appelsínugul viðvörun verður í gildi frá hádegi á Suðvesturlandi, Suður- og Suðausturlandi auk hálendisins en gul viðvörun annars staðar frá því snemma morguns. Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir þegar tekið að blása, veðrið verði býsna slæmt og kannski frekar óvenjulegt fyrir apríl. „Já, þetta er kannski meira svona eins og þorraveður. En þá kannski skiluðu lægðirnar sér illa en það er kannski meiri gangur í þeim núna.“ Vegum verður víða lokað og truflanir geta orðið á öðrum samgöngum, í lofti og á legi. „Það verður blástur í allan dag og í rauninni á morgun líka en hægari. Það eru ekki viðvaranir í gildi þá. Snjókoman sunnantil fer yfir í slyddu og rigningu síðdegis í dag og fyrir norðan verður þetta snjór fram á kvöld. Þar styttir svo upp í nótt,“ segir Haraldur. „Það er vaxandi austanátt og fer að snjóa. Gert er ráð fyrir stormi og roki á sunnanverðu landinu um og eftir hádegi. Svo færist veðrið norður fyrir heiðar þannig að þetta gengur yfir allt land. Það verður blástur í allan dag og í rauninni á morgun líka en hægari. Það eru ekki viðvaranir í gildi þá.“ Haraldur segir brýnt að hlusta á ráð ráðleggingar Vegagerðarinnar, Veðurstofu og fleiri, vegalokanir séu í gildi og veður viðvarandi. „Mér skilst að vegir verði lokaðir hérna syðra þannig að þeir sem ætla að hyggja á ferðalög verða auðvitað að tékka á veðrinu og færðinni. Það lítur ekki vel út með ferðaveður í dag.“ Og það á að hlýna? „Það á að gera það, já. Þetta verður öllu skárra á morgun þótt hann blási en þá verður komið milt veður. “