Byggðarráð Norðurþings ákvað á fundi sínum að fresta framkvæmdum í sveitarfélaginu fram á næsta ár sökum þungrar stöðu sveitarsjóðs. Framkvæmdirnar sem um ræðir eru endurbætur á íþróttahúsinu á Húsavík, endurnýjun á götu og endurbætur á stjórnsýsluhúsinu í bænum. Staðan er tilkomin að hluta vegna stöðvunar verksmiðju PCC á Bakka. Það sem vegur einnig þungt er krafa hvalaskoðunarfyrirtækja um endurgreiðslu farþegagjalda nemur 190 milljónir króna Þetta kemur illa við sveitarsjóðinn. „Bæði gerðum við ráð fyrir því að fá tekjur eins og við höfum verið að fá síðan það var byrjað að innheimta þetta árið 2010-11. Auðvitað gerðum við ráð fyrir því að fá þessar tekjur inn en nú munum við ekki fá þær heldur eru þetta peningar út úr áætlun sem við gerðum ráð fyrir að kæmu inn,“ segir Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar Norðurþings. Hann tekur sérstaklega fram að um er að ræða frestun til næsta árs en ekki sé verið að hætta við neitt. Þetta sé skynsama leiðin í stöðunni, skömmu fyrir kosningar. „Það væri óskynsamlegt af núverandi sveitarstjórn að binda hendur næstu sveitarstjórnar og jafnvel stuðla að því að sveitarfélagið verði ekki sjálfbært í rekstri. Það er óskynsamlegt að mínu mati. Og finnst mér þó skynsamlegra að fresta ákveðnum framkvæmdum og mæta atvinnulífinu með öðrum hætti en er þarna," sagði Hjálmar.