Innlent | Morgunblaðið | 27.3.2026 | 10:00 Fresta framkvæmdum á Húsavík Lengi hefur staðið til að reisa nýtt hjúkrunarheimili á Húsavík. Nú er það loksins komið í hönnunarfasa. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson Sonja Sif Þórólfsdóttir [email protected] Setja bókamerki Hluta af framkvæmdum og fjárfestingum sveitarfélagsins Norðurþings sem fyrirhugaðar voru á þessu ári hefur verið frestað til næsta árs. Ákvörðun þess efnis var tekin á sveitarstjórnarfundi í vikunni en tillagan hafði áður verið samþykkt í byggðarráði. Fimm sveitarstjórnarfulltrúar greiddu atkvæði með ákvörðuninni en þrír gegn henni. Einn sat hjá. Ástæðan er bág fjárhagsstaða sveitarfélagsins en kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka fór í rekstrarstöðvun á síðasta ári og hefur Norðurþing orðið af miklum tekjum vegna þess. Gripið hefur verið til hagræðingaraðgerða að upphæð 120 milljónir króna og áformuð er 130 milljóna króna hagræðing til viðbótar. Hefur þessi hagræðing meðal annars náð til Sundlaugarinnar á Húsavík en afgreiðslutími hennar hefur verið skertur. Ógreidd krafa Þá stendur sveitarfélagið einnig frammi fyrir kröfum vegna farþegagjalda að upphæð 130 milljónir króna. Hvalaskoðunarfyrirtækið Gentle Giants hafði betur gegn Hafnarsjóði Norðurþings í Landsrétti í október á síðasta ári eftir áralanga deilu um lögmæti farþegagjalds sem hafnarsjóðurinn innheimtir. Hæstiréttur hafnaði í janúar beiðni Hafnarsjóðs Norðurþings um áfrýjunarleyfi og þar með stendur dómurinn. „Til að tryggja að fjárhagur sveitarfélagsins standist áfram fjárhagsleg viðmið og koma í veg fyrir að sveitarfélagið lendi í fjárþröng og geti ekki staðið skil á afborgunum lána, launum, launatengdum gjöldum og öðrum skuldbindingum teljum við ekki annað fært en að fresta tilteknum fjárfestingum sem áformaður voru á árinu 2026 til ársins 2027,“ segir í bókun Hjálmars Boga Hafliðasonar, forseta sveitarstjórnar og fulltrúa Framsóknar, og Helenu Eydísar Ingólfsdóttur, 2. varaforseta og fulltrúa Sjálfstæðisflokks. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur eru í meirihluta í sveitarstjórn. Áformuð fjárfesting ársins verður því 410 m.kr. í A-hluta í stað 595 m.kr. Ekki allt í frosti Segir einnig í bókuninni að Orkuveita Húsavíkur muni áfram framkvæma töluvert mikið og meðal annars fara í framkvæmdir við Auðbrekku á Húsavík sem kallar á aðkomu jarðvinnuverktaka. Þá standi yfir bygging félagsmiðstöðvar og frístundahúsnæðis við Borgarhólsskóla sem verður afhent við upphaf næsta skólaárs. Einnig verði ráðist í framkvæmdir við Suðurgarð. Þær framkvæmdir sem seinkað verður eru endurnýjun götu við Ketilsbraut og framkvæmdir við stjórnsýsluhús á Ketilsbraut 7-9 á Húsavík og ný sundlaug í Lundi. Einnig verður því frestað að endurnýja gólf og stúku í íþróttahöll. Áki Hauksson, aðalmaður í sveitarstjórn, lagði til að framkvæmdum við stjórnsýsluhúsið yrði ekki frestað svo verja mætti húsið fyrir frekari skemmdum. Bitnar á börnum Aldey Unnar Traustadóttir, Áki Hauksson, Benóný Valur Jakobsson og Ingibjörg Benediktsdóttir, fulltrúar minnihlutans í sveitarstjórn, fengu bókað að þau lýstu yfir andstöðu við að fresta framkvæmdum er snúa að börnum og fjölskyldum í sveitarfélaginu. Segir í bókun þeirra að þrátt fyrir erfiða fjárhagsstöðu sé mikilvægt að forgangsraða þannig að ekki sé dregið úr uppbyggingu og aðstöðu sem hefur bein áhrif á velferð, heilsu og félagsþátttöku barna og ungmenna. „Slíkar framkvæmdir eru langtímafjárfesting í samfélaginu og lykilþáttur í að viðhalda aðdráttarafli sveitarfélagsins,“ segir í bókun þeirra. Geti leitt til atvinnuleysis Þá bendir minnihlutinn einnig á að mikilvægt sé að hafa í huga áhrif frestunar framkvæmda á atvinnu verktaka á svæðinu og samdráttur í verkefnum geti haft neikvæð áhrif á atvinnustig og atvinnulíf í sveitarfélaginu. Þá benda þau á að frestun viðhaldsframkvæmda við stjórnsýsluhúsið geti leitt til frekari skemmda og aukins kostnaðar síðar. „Undirrituð telja því að leita eigi annarra leiða til hagræðingar sem bitna síður á barnafjölskyldum, innviðum og atvinnulífi í sveitarfélaginu,“ segir enn fremur í bókun minnihlutans. Þess má geta að þegar er samdráttur í verkefnum á svæðinu í kjölfar rekstrarstöðvunar PCC á Bakka á síðasta ári. Sex tilboð bárust í byggingu hjúkrunarheimilis Hönnun nýs hjúkrunarheimilis Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur tekið tilboði Pekron ehf. sem lagt var fram fyrir hönd Rafkletts ehf. í byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík. Alls bárust sex tilboð frá fjórum aðilum. Það eru Pekron, Þingvangur, Eik og Reitir en þau tvö síðastnefndu gerðu tvö tilboð hvort um sig. Í tilkynningu frá FSRE segir að tilboð Pekron hafi verið metið hagstæðast fyrir kaupanda. Pekron hafi boðið lægsta verðið og stysta afhendingartíma og hlaut það því flest samanlögð heildarstig gildra tilboða. Heildartilboðsfjárhæð miðar við mánaðarlegt leiguverð fyrir hvern fermetra á mánuði. Áætlað mánaðarlegt leiguverð á hvern fermetra, samkvæmt kostnaðaráætlun, var: 6.200 kr. Pekron bauð 6.350 kr., Eik 1 bauð 9.288 kr., Eik 2 bauð 11.880 kr., Reitir 1 buðu 6.775, Reitir 2 buðu 5.645 kr. og Þingvangur bauð 9.969. Tilboð Pekron er því 150 kr. yfir kostnaðaráætlun. Fram undan er hönnunarferli. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Riðill Íslands í undankeppni HM Úthugsuð árás Bandaríkjanna Sjáðu hvar páskaeggin eru ódýrust Fresta framkvæmdum á Húsavík Benedikt Sveinsson og Sif selja glæsiíbúð með þremur bílastæðum Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stefnir á 80 milljarða afgang næstu fimm árin 13 með réttarstöðu sakbornings í Höfðatorgsmáli Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Skúli og aðrir stjórnarmenn sýknaðir Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Bubbi spáir hruni Spotify Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Riðill Íslands í undankeppni HM Úthugsuð árás Bandaríkjanna Sjáðu hvar páskaeggin eru ódýrust Fresta framkvæmdum á Húsavík Benedikt Sveinsson og Sif selja glæsiíbúð með þremur bílastæðum Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Myndskeið: Krefjandi aðstæður á brautinni Úthugsuð árás Bandaríkjanna Geta ekki sagt „full og varanleg“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Eldur kviknaði í sumarbústað í Kjósinni Meirihluti framlínufólks undir gríðarlegu álagi Bubbi spáir hruni Spotify Alvarlegt netsvindl fyrir vestan Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“