Innlent | Morgunblaðið | 29.4.2026 | 18:30 Kreppir að atvinnulífi í Norðurþingi Kjartan Páll Þórarinsson (S), Eysteinn Heiðar Kristjánsson (B), Helena Eydís Ingólfsdóttir (D), Aldey Unnar Traustadóttir (V), Rúnar Traustason (M) og Ómar Gunnarsson (Ó). mbl.is/Kristófer Liljar Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Beint: Kosningafundur Viðskiptaráðs Meirihlutinn í Hafnarfirði fallinn Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert » Fleiri tengdar fréttir Staða atvinnulífs, viðhald innviða og fjárhagur hins víðfeðma Norðurþings eru ofarlega á baugi í umræðunni þegar Morgunblaðið stefnir oddvitaframbjóðendum sveitarfélagsins til samtals á Húsavík um stöðu og framtíð sveitarfélagsins. Norðurþing varð til árið 2006 við sameiningu Húsavíkurbæjar, Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnarhrepps og Kelduneshrepps. Íbúar eru nú tæplega 3.200. Sex listar bjóða fram í sveitarfélaginu að þessu sinni: V-listi velferðar, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Óskalistinn, M-listi samfélagsins og Samfylkingin. Frétt af mbl.is Meintir risaafslættir á heitu vatni Frétt af mbl.is 100 manns flutt frá bænum síðan PCC fór PCC setur strik í reikning Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sem nú fer með völd í sveitarfélaginu setti sér í upphafi kjörtímabils það markmið eftir síðustu kosningar að fjölga íbúum um 100 á fjórum árum. Helena Eydís Ingólfsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir það markmið hafa náðst fljótt, en að staðan hafi breyst hratt eftir að kísilverksmiðjan PCC stöðvaði framleiðslu sína á Bakka. „Síðastliðna sextán mánuði held ég að ég geti sagt að okkur hafi fækkað um rúmlega 100 manns,“ segir Helena og bendir á að tekjur sveitarfélagsins hafi dregist saman, ekki síst hafnartekjur. Eysteinn Heiðar Kristjánsson er oddviti Framsóknarflokksins í kosningunum fram undan. Hann segir sveitarfélagið þó standa styrkum fótum. Áfallið vegna PCC hefur reynst mikið, en hann segir að á síðustu árum hafi kraftur verið settur í uppbyggingu og unnið að því að styrkja stoðir sveitarsjóðs. Frétt af mbl.is X26: Oddvitakappræður hafnar Viðhald stærsta verkefnið Frambjóðendurnir eru sammála um að viðhald eigna og innviða verði eitt stærsta verkefni næsta kjörtímabils. Rúnar Traustason, oddviti M-lista samfélagsins, segir sveitarfélagið komið í mikla innviðaskuld. „Innviðirnir númer eitt, tvö og þrjú,“ segir Rúnar og nefnir sérstaklega gatnakerfi, veitur, skólahúsnæði, stjórnsýsluhús sveitarfélagsins og sundlaugina í Lundi. Stjórnsýsluhúsið hefur staðið tómt í tvö ár vegna leka og óheilbrigðra aðstæðna. Þá er rætt um leka í skólanum í Lundi og viðhaldsþörf í grunnskólanum á Húsavík. Ómar Gunnarsson oddviti Óskalistans tekur undir að sveitarfélagið verði að sinna eignum sínum betur og varar við því að vandinn gæti orðið mun dýrari ef ekkert er að gert. Eysteinn segir innviðaskuldina ekki hafa orðið til á einu kjörtímabili. Hann leggur til að rekstur eignasjóðs verði styrktur þannig að faglegt mat ráði frekar för í viðhaldi og forgangsröðun þess en pólitískar áherslur hverju sinni. Börn og byggðaþróun Skólamál á Raufarhöfn hafa reynst snúið úrlausnarefni á vettvangi sveitarfélagsins. Þar hefur grunnskólanum verið lokað vegna fámennis og erfiðleika við að manna stöður með fagmenntuðu fólki. Aldey Unnar Traustadóttir, oddviti V-lista velferðar, segir stöðuna erfiða. „Ef þú ætlar að byggja upp samfélag, þá þarftu að vera með skólastarf þar,“ segir hún, en bætir við að erfitt sé að halda úti skóla með aðeins tvö börn. Ómar, sem talar sérstaklega máli hinna dreifðari byggða og smærri byggðarlaga innan sveitarfélagsins, leggur áherslu á að ekki verði meira „hringl“ með skóla- og leikskólamál í austurhluta sveitarfélagsins. Segir hann Raufarhöfn og Kópasker þurfa stöðugleika. Viðmælendur Morgunblaðsins í Norðurþingi eru þó sammála um að atvinnumálin ráði mestu um hvort barnafjölskyldur geti sest þar að. Bakki og byggðakvóti Atvinnumál eru fyrirferðarmikil í umræðu frambjóðendanna. Framsókn leggur áherslu á að næsta stóra orkufreka verkefni verði á Bakka og að verja þurfi orkuauðlindir svæðisins. Helena segir áhuga fyrirtækja á Norðurþingi aldrei hafa verið meiri og að sveitarfélagið sé að undirbúa sig með skipulagi og lóðum. Raufarhöfn er sérstaklega rædd í tengslum við byggðakvóta. Eysteinn segir sértækan byggðakvóta vera „haldreipi Raufarhafnar“ og að sveitarstjórn verði að standa vörð um hann. Helena tekur undir og segir að strandveiðar komi ekki í stað byggðakvóta, enda tryggi hann vinnslu fisks á staðnum. Umdeildir orkusamningar Samningar Orkuveitu Húsavíkur við stór fyrirtæki á svæðinu hafa hrist upp í umræðunni í Norðurþingi að undanförnu. Rætt er um gamla samninga við N-fisk og GPG fiskverkun sem hafa falið í sér mikla afslætti sem önnur fyrirtæki hafa ekki notið (sjá blaðsíðu 2). Helena segir stjórn Orkuveitunnar þegar hafa málið í farvegi og ætla að endurskoða samningana. Rúnar og Aldey gagnrýna hins vegar að erfitt hafi verið að fá gögn afhent og telja málið kalla á skýrari svör. ESB klofningsmál Í lok samtalsins er rætt um Evrópusambandið. Kjartan Páll, oddviti Samfylkingarinnar, segist fylgjandi því að hefja samtal og telur að aðild geti reynst almenningi, bændum og dreifðum byggðum jákvæð. Rúnar og Eysteinn lýsa sig andvíga aðild, einkum vegna sjávarútvegs, landbúnaðar og erfiðrar hagsmunagæslu. Helena segist ekki hlynnt inngöngu á þessum tímapunkti. Aldey og Ómar kalla eftir meiri upplýsingum áður en þau geti tekið afstöðu til málsins. Samtalið frá Norðurþingi í hljóði og mynd á mbl.is og Spotify. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Beint: Kosningafundur Viðskiptaráðs Meirihlutinn í Hafnarfirði fallinn Mikil andstaða við umferðargjöld á annatímum Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kristall með þrennu gegn toppliðinu Hildur glansaði í ljósblárri dragt í Bragganum Gísli markahæstur í Meistaradeildinni Uppselt á grannaslaginn fyrir norðan Kreppir að atvinnulífi í Norðurþingi Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Láta undan suði og vilja fræðslu um klám Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Klám er undirstöðuvandamálið Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“ Nýjast á mbl.is » Kristall með þrennu gegn toppliðinu Hildur glansaði í ljósblárri dragt í Bragganum Gísli markahæstur í Meistaradeildinni Uppselt á grannaslaginn fyrir norðan Kreppir að atvinnulífi í Norðurþingi Umræðan Hafnarfjörður er fyrir fólk – ekki kerfi eða fjármagn Fólk geti eignast þak yfir höfuðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Daði Már: Skilningur hjá aðilum vinnumarkaðarins Þetta segja framboðin í borginni um menntamálin „Betur má ef duga skal“ Verðbólgumælingar „í takt við stóru myndina“ Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Börnin biðja um tölur en fá úrtölur Vesturlandsvegur skal varinn Meintir risaafslættir á heitu vatni Tæpir 78 milljarðar í örorkubætur 2025 Eru að missa starfsfólk sem fær ekki húsnæði Vilja fækka starfsfólki borgarinnar umtalsvert Herjólfur bilaður og höfnin lokuð Gölluð tillaga sem byggist á misskilningi Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn 50 handteknir í samræmdri lögregluaðgerð „Er hann að fara að lenda framan á annarri umferð?“ Bilun kom upp eftir að vélarnar voru ræstar Hildur við Einar: „Þú átt ekki að tala!“ 16 mínútur verða 50 frá Hafnarfirði í HÍ Svarar gagnrýni Grindvíkinga: „Rugl og falsfréttir“ Alvarleg stunguárás í heimahúsi í Árbæ Kristrún vill sjálf dæma Á fund Daða með 40 þúsund undirskriftir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Vendinga að vænta í veðrinu Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Fékk neyðarsímtal og bjargaði tónleikum Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys „Orðin þrettán innbrot síðan við byrjuðum“