Innlent | mbl | 25.3.2026 | 16:53 Curver og Felex hafnað en Híramía og Valjón samþykkt Alls hlutu tíu nöfn náð fyrir augum Mannanafnanefndar að þessu sinni, þeirra á meðal Sunney og Valjón. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Híramía, Pia, Iðja, Kaija, Amaníta, Sunney og Nora eru meðal þeirra nafna sem Mannanafnanefnd hefur samþykkt sem eiginnöfn kvenna með nýlegum úrskurðum, og drengir mega nú að sama skapi bera nöfnin Valjón, Rikard og Marcus. Ekki fékkst þó heimild fyrir tveimur karlkyns eiginnöfnum sem fyrir nefndina komu: Curver og Felex. Frétt af mbl.is Nú má heita Love Frétt af mbl.is Múhameð hlaut náð en Latýnu hafnað Hvorki hefð fyrir Curver né Felex Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Þau skilyrði eru eftirfarandi: Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Nöfnin Curver og Felex þóttu ekki uppfylla skilyrði nefndarinnar, enda uppfylla þau hvorki þau skilyrði sem hér að ofan eru tilgreind né nýlegar vinnulagsreglur sem kveða á um það hvenær nafn hafi unnið sér hefð í íslensku máli. Felex er hvorki þekkt sem íslenskt nafn né tökunafn og því ekki hægt að fallast á það sem ritmynd karlmannsnafnsins Felix, að því er fram kemur í úrskurði nefndarinnar. Enginn Curver á Íslandi Þrátt fyrir að eiginnafnið Curver (kk.) taki íslenska eignarfallsendingu, Curvers, kemur fram í úrskurðinum að það sé ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn c er ekki í íslenska stafrófinu. Aðeins sé því unnt að samþykkja nafnið að hefð sé fyrir þessum rithætti þess, og þar sem engir einstaklingar á Íslandi beri nafnið Curver sé nefndinni ekki unnt að samþykkja það. Þrátt fyrir að enginn Íslendingur beri nafnið Curver löglega er raftónlistarmaðurinn Birgir Örn Thoroddsen iðulega kallaður nafninu. Nöfnin tíu sem samþykkt voru hafa nú verið færð á mannanafnaskrá, að því er fram kemur í úrskurðum Mannanafnanefndar. Þá voru þrjár föðurkenningar staðfestar: Andrason, Artúrsdóttir og Lúkasson. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Curver og Felex hafnað en Híramía og Valjón samþykkt „Alls ekki eðlilegt“ Segir misráðna stefnu Trumps bitna á efnahagslífinu Arsenal strax farið að skoða aðra framherja Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tíðinda beðið eftir fundi með Friðriki „Alls ekki eðlilegt“ Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Mette komin með umboðið Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Lögreglan greini grímulaust frá atburðum Curver og Felex hafnað en Híramía og Valjón samþykkt „Alls ekki eðlilegt“ Segir misráðna stefnu Trumps bitna á efnahagslífinu Arsenal strax farið að skoða aðra framherja Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Alls ekki eðlilegt“ Tíðinda beðið eftir fundi með Friðriki Telur heimilin vilja óverðtryggð lán Eldur kviknaði í bíl á Vesturlandsvegi Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl