Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Valjón, Bísan, Nátt og Amaníta samþykkt sem nöfn Ragnar Jón Hrólfsson Nokkrum nýjum nöfnum hefur verið bætt við í mannanafnaskrá samkvæmt nýjustu úrskurðum mannanafnanefndar. Samþykkt hafa verið eiginnöfnin Nora, Kaija, Marcus, Sunney, Amaníta, Valjón, Bísan og Nátt. Þá hefur mannanafnanefnd einnig fallist á föðurkenningarnar Artúrsdóttir og Lúkasson. Einni beiðni um eiginnafnið Curver var hafnað. Hvaða nafn skyldi þetta barn fá? Kannski Nora, Kaija eða Valjón. Scott Webb Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Ísfélagið hagnaðist um 2,8 milljarða í fyrra Ísfélagið hagnaðist um 2,8 milljarða króna í fyrra og eignir þess í lok árs 2025 108,4 milljörðum. Félagið birt ársuppgjör í dag. Fyrir 38 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Fyrrverandi stjórnandi hjá Google ráðinn útvarpsstjóri BBC Nýráðinn útvarpsstjóri BBC stýrði starfsemi Google í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Asíu í áratug. Hann hefur hvorki starfað í blaðamennsku né sjónvarpi áður. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Framlengja gæsluvarðhald yfir manni vegna árásar í bílakjallara Annar mannanna sem eru í haldi vegna líkamasárásarinnar í bílakjallaranum í Borgartúni verður í gæsluvarðhaldi til 22. apríl. Varðhaldið yfir hinum rennur út á föstudag. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Herir um 30 ríkja stofna til bandalags um opnun Hormússunds Ríkin segjast tilbúin til að beita viðeigandi ráðstöfunum til að tryggja öruggar siglingar um Hormússund. Umferð um sundið, sem er ein mikilvægasta siglingaleið heimshafanna, stöðvaðist nær alveg eftir að stríð braust út í lok febrúar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Ragnheiður Erla Bjarnadóttir látin Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir sem varð landsþekkt fyrir þátttöku og stjórn í spurningaþáttum í sjónvarpinu er látin, 72 ára að aldri. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Börðust yfir fjöllin með sjúkling og rúðuþurrkurnar gáfu sig Sjúkraflutningamenn, björgunarsveitir og mokstursmenn unnu afrek við að koma sjúklingi frá Egilsstöðum til Akureyrar í óveðrinu aðfaranótt þriðjudags. Skyggni var ekkert á köflum og góð ráð dýr þegar rúðuþurrkur hættu að ganga á sjúkrabílnum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Ekki skýrt í lögum hver ber ábyrgð á líki ef engir vandamenn eru til staðar Ekki er skýrt í lögum hver ber ábyrgð á líki ef engir vandamenn eru til staðar til að hafa samband við útfararstofu eftir að dánarvottorð hefur verið gefið út. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn þingmanns Framsóknarflokksins. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Ísaksskóli opnar skóla í Kópavogi Brynjólfur Þór Guðmundsson Páll Harðarson, stjórnarformaður Ísaksskóla, og Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, hafa undirritað viljayfirlýsingu um að Ísaksskóli taki að sér rekstur nýs skóla í Vatnsendahvarfi fyrir leikskólabörn og nemendur í fyrsta til fjórða bekk grunnskóla. Nýi skólinn verður rekinn samhliða skólanum í Bólstaðarhlíð í Reykjavík sem starfar áfram í óbreyttri mynd. Engin skólagjöld verða innheimt í nýja skólanum. Ingibjörg Ýr Pálmadóttir deildarstjóri grunnskóladeildar, Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs, Páll Harðarson, stjórnarformaður Ísaksskóla, Sigríður Anna Guðjónsdóttir skólastjóri, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og Orri Hlöðversson, formaður bæjarráðs, Kópavogsbær Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Vildi flýja ofbeldi Waltraud með litlu systur: „Þetta var bara hrikalegt“ Systurnar Hanna Hrefnudóttir og Ásdís Sveinjónsdóttir bjuggu á heimilinu hjá Waltraud Paulsen í Mosfellssveit í tvö ár. Þær vilja rannsókn á heimilinu. Önnur systirin missti hárið og neglurnar af áfallinu sem hún upplifði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Tugmilljóna greiðslum rift vegna gjaldþrots Viðskiptavitsins Þrjú fyrirtæki verða að greiða þrotabúi FX21 samtals 43,5 milljónir króna vegna riftunar á greiðslum. Stjórnandi FX21, sem hét áður Viðskiptavitið, stjórnaði öllum félögunum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Allt bendir til þess að Frederiksen fái stjórnarmyndunarumboð Útlit er fyrir flóknar og erfiðar stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku. Mette Frederiksen telur samstarf rauðu blokkarinnar og Moderaterne vera raunhæfasta valkostinn. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Illviðri spáð á morgun: „Það má svo sannarlega búast við röskun“ Vonskuveðri er spáð um allt land á morgun og stórhríð suðvestantil. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendinu í morgunsárið en gular viðvaranir verða í öðrum landshlutum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Norðurland Fresta framkvæmdum vegna þungrar stöðu sveitarsjóðs Ákveðið hefur verið að fresta framkvæmdum í Norðurþingi sökum þungrar stöðu sveitarsjóðs um þessar mundir. Forseti sveitarstjórnar segir það skynsamlegt rétt fyrir kosningar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögreglan segir ekkert benda til tengsla við Hamas Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir ekkert benda til þess að þeir sem handteknir voru vegna líkamsárásar í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin eða séu á lista yfir grunaða hryðjuverkamenn. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði meðal vega sem verður lokað í nótt Vegagerðin hefur tilkynnt um þær lokanir sem ákveðnar voru út frá veðurspá morgundagsins og appelsínugulri viðvörun. Vegum verður ýmist lokað eða óvissustigi lýst yfir sem þýðir að þeir geti lokað með litlum fyrirvara. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélagsmiðlar „Það eru kynslóðir sem hafa orðið fyrir skaða nú þegar“ Móðurfélag Facebook og Instagram hefur verið dæmt fyrir að hafa vísvitandi blekkt notendur og gert börn berskjölduð fyrir skaðlegu efni. Forseti Íslands vill að enn meira sé gert til að draga samfélagsmiðlafyrirtæki til ábyrgðar. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Íshokkí SR jafnaði úrslitaeinvígið eftir vítakeppni Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí er hnífjafnt eftir æsispennandi leik SR og SA í gærkvöld. SR hafði betur í leiknum eftir vítakeppni og staðan í einvíginu því 1-1. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Segja Bandaríkjamenn eiga í samningaviðræðum við sjálfa sig Fullyrðingar íranskra embættismanna og Bandaríkjaforseta um friðarviðræður stangast á. Bandaríkjaforseti segir Írana þrá að semja um frið en Íranar kannast ekki við samningaviðræður. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður „Þegar fílarnir dansa er ekki gott að vera gras“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra telur að aðild að Evrópusambandinu geti verið leið til að koma Íslandi í skjól í heimi sem sé að breytast hratt. Hún sat fyrir svörum á fundi utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Vill íslenskt mállíkan svo viðkvæmar upplýsingar verði ekki söluvara Nýsköpunarráðherra segir að tryggja verði gervigreindarfullveldi Íslands þannig að landið geti þróað, hýst og haft áhrif á gervigreindartækni. Hann vill koma á fót íslensku mállíkani sem geti unnið með gögn sem ekki megi verða söluvara. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Bráðaþjónustu Landspítala gjörbylt að breskri fyrirmynd Til stendur að gjörbylta bráðaþjónustunni í Fossvogi til að koma í veg fyrir þá örtröð og troðning sem hefur einkennt bráðamóttökuna síðustu ár. Breskur bráðalyflæknir hefur verið ráðinn til að fylgja breytingunum eftir. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Hundakallinn og partíljónið Lars Løkke Rasmussen Eins og skoðanakannanir gáfu til kynna stendur Lars Løkke Rasmussen, formaður Moderaterne, með pálmann í höndunum eftir kosningar í Danmörku í gær. Hann er eldri en tvævetur í pólitíkinni og hefur verið lýst sem dugnaðarforki og partíljóni. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Ísland gæti misst aðgang að öllum kaupskipum sínum komi til átaka Varað er við því í nýrri skýrslu að Ísland gæti misst aðgang að öllum kaupskipum sínum ef alvarleg átök brjótast út í heiminum. Ekkert þeirra er skráð á Íslandi. Um 90% af vöruviðskiptum berast til Íslands sjóleiðis. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Fjármálakerfið traust en brýnt að koma á kortaviðskiptum án nettengingar sem fyrst Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands segir fjárhagslega stöðu kerfislega mikilvægra banka sterka og að þeir hafi endurfjármagnað sig til lengri tíma en áður. Nefndin vill fá greiðslukerfi sem virkar án nettengingar sem fyrst. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Hættustigi aflýst á Seyðisfirði Almannavarnir hafa aflýst hættustigi vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði. Síðustu rýmingu var aflétt. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Sækir sömu staðina aftur og aftur rétt eins og æðarkollan Elín Elísabet Einarsdóttir hefur síðustu sumur varið dögunum í að mála undir berum himni í félagi við fugla og plöntur. Hún segist falla þar hálfpartinn í trans og það sé eins og málverkið vinni sig sjálft. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Danski þjóðarflokkurinn bætti við sig 11 þingsætum Leiðtogi Danska þjóðarflokksins sagði í viðtali við RÚV að hann vildi gjarnan í ríkisstjórn, en flokkurinn endaði líklega í stjórnarandstöðu. Hann segist ekki vilja fara í ríkisstjórn með Mette Frederiksen eða Lars Løkke Rasmussen. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Dróni frá Rússlandi sprakk í Lettlandi og annar olli skemmdum í Eistlandi Turn orkuvers í Eistlandi skemmdist þegar dróna frá Rússlandi var flogið á hann. Öðrum dróna var flogið frá Rússlandi inn í lettneska lofthelgi þar sem hann sprakk. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Til í að losa olíubirgðir þegar og ef þarf Brynjólfur Þór Guðmundsson Fatih Birol, yfirmaður Alþjóðaorkumálastofnunarinnar, sagðist í dag vera reiðubúinn að losa um olíubirgðir úr varaforða aðildarríkja þegar og ef þörf krefði. Það yrði í annað skipti sem