Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Metfjöldi Íslendinga á Mobile World Congress

  • What: Large number of Icelanders attend Mobile World Congress
  • Impact: Highlights advancements in telecommunications and IoT
Read Full Article →

Viðburðurinn Mobile World Congress (MWC) var haldinn í Barcelona á dögunum og samkvæmt tilkynningu hafa líklega aldrei jafn margir frá Íslandi áður verið viðstaddir á þessum stærsta viðburði heims á sviði fjarskipta og tækni. MWC dregur jafnan að yfir 100.000 þátttakendur, þúsundir fyrirtækja og fulltrúa frá nær öllum þjóðum og gefur skýra mynd af því hvert tæknin er að stefna. Ólafur Magnússon, tæknistjóri Nova, var meðal fjölmargra Íslendinga sem sóttu viðburðinn og segir að það sem hafi staðið upp úr í ár hafi verið hversu hratt fjarskipti eru að breytast. „Fjarskiptakerfi eru í auknum mæli að verða grunnur að nýrri stafrænni þjónustu, allt frá snjöllum heimilum til stærri lausna fyrir fyrirtæki og samfélög. Gervigreind spilar þar auðvitað lykilhlutverk og er hún nú farin að stýra fjarskiptanetum að hluta, greina vandamál áður en þau hafa áhrif og bæta upplifun notenda í alla staði.“ Hann bendir á að það séu fjölmörg ný tækifæri fyrir fyrirtæki, þar á meðal með tengingu tækja (IoT), öruggum skýjalausnum og hraðari gagnavinnslu fyrir notendur. „Þessi þróun hefur bein áhrif á okkar daglega líf, til dæmis í snjöllum borgum, samgöngum og stafrænum lausnum fyrir heimili og vinnustaði.“

Share this article