Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW Updates RÚV

Byrja að loka 3G-farsímakerfinu á höfuðborgarsvæðinu á morgun

  • What: 3G networks are being shut down in the capital area and will be fully discontinued in May.
  • Impact: Users with older phones or foreign devices may be affected.
Read Full Article →

Fjarskiptafyrirtæki landsins byrja á morgun að loka 3G-fjarskiptakerfinu á höfuðborgarsvæðinu. Í framhaldi af því verður öllum 3G-kerfum á landsbyggðinni lokað í maí. Undirbúningur að lokun 3G-fjarskiptakerfisins hefur staðið yfir lengi og verður nú að veruleika. Það getur haft áhrif á fjarskipti fólks með eldri síma og síma sem keyptir eru erlendis. Búið er að setja upp sjálfvirkan símsvara sem fólk getur hringt í til að ganga úr skugga um hvort símar þess dugi áfram til neyðarsímtala eftir að 3G-kerfinu hefur verið lokað. Fjarskiptastofa og Neyðarlínan leggja áherslu á að fólk eigi ekki að hringja í 112 til að prófa sambandið því það getur valdið óþarfa álagi á neyðarþjónustu. Símnotendur sem hafa fengið SMS frá fjarskiptafyrirtæki sínu um að uppfæra eða skipta út símum sínum geta þess í stað hringt í 1280 til að kanna hvort síminn dugi til að hringja neyðarsímtöl eftir að slökkt hefur verið á 3G-kerfinu.

Share this article