- What: 3G network shutdown begins in Iceland
- Impact: Users with older devices may be affected
Fjarskiptafyrirtæki landsins byrja á morgun að loka 3G-fjarskiptakerfinu. Fyrstu skrefin verða tekin á höfuðborgarsvæðinu. Lokanir á landsbyggðinni hefjast í næsta mánuði. Undirbúningur að lokun 3G-fjarskiptakerfisins hefur staðið yfir lengi og verður nú að veruleika. Það getur haft áhrif á fjarskipti fólks með eldri síma og síma sem keyptir eru erlendis. Búið er að setja upp sjálfvirkan símsvara sem fólk getur hringt í til að ganga úr skugga um hvort símar þess dugi áfram til neyðarsímtala eftir að 3G-kerfinu hefur verið lokað. Fjarskiptastofa og Neyðarlínan leggja áherslu á að fólk eigi ekki að hringja í 112 til að prófa sambandið því það getur valdið óþarfa álagi á neyðarþjónustu.