Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Talsverð röskun á flugi og vegum lokað víða um land

Read Full Article →

Talsverð röskun verður á flugferðum til og frá landinu á morgun vegna vonskuveðurs og stórhríðar. Vegum víða um land verður lokað í nótt og má því búast við talsverðum samgöngutruflunum. Ekkert ferðaveður og fjölda vega lokað Gul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi klukkan fimm í fyrramálið og appelsínugul upp úr sjö, og þá einnig á miðhálendinu. Þær falla úr gildi rétt eftir hádegi. Gul viðvörun verður í öðrum landshlutum fram eftir degi. Ekkert ferðaveður verður víða um land, og alls ekki á sunnan- og vestanverðu landinu og höfuðborgarsvæðinu til hádegis og má gera ráð fyrir talsverðum samgöngutruflunum. „Það verður mjög hvasst snemma í fyrramálið á öllum leiðum til og frá Reykjavík, þar með talið Reykjanesbrautin, Kjalarnesið, undir Hafnarfjalli og á Hellisheiði. Þá er vindur kominn vel yfir þolstyrk og byrjar sem stórhríð og verður blint í því. Þannig að þessir vegir loka líklega,“ sagði Daníel Þorláksson, veðurfræðingur hjá Vegagerðinni. „Þetta eru kröftug skil sem ganga til austurs eftir landinu og koma yfir Reykjanesið snemma í fyrramálið og eru að ganga að Langanesi á norðausturhorninu annað kvöld. Það má segja að á einhverjum tímapunkti þá loki einhverjir fjallvegir á meðan þessi skil ganga til austurs.“ Þá verði hringveginum um Suðurland lokað frá Hvolsvelli að Höfn frá klukkan sex að morgni. Fleiri vegir verða á óvissustigi og bendir Daníel á að þeim geti verið lokað með skömmum fyrirvara. Flugum ýmist aflýst eða seinkað Talsverð röskun verður á flugáætlun Icelandair á morgun. Öllum brottförum frá Bandaríkjunum í kvöld hefur verið seinkað og er gert ráð fyrir að vélarnar lendi í hádeginu í stað snemma morguns. Þá hefur ellefu morgunflugferðum til Evrópu verið aflýst og níu verið seinkað þangað til eftir hádegi. Einu flugi til Bandaríkjanna hefur einnig verið frestað. Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair mun veðrið hafa áhrif á innanlandsflug fyrir hádegi og hefur farþegum verið boðið að færa flug sitt um einn dag til eða frá. Önnur flugfélög sem fljúga áttu frá Keflavíkurflugvelli í fyrramálið hafa seinkað brottför. Búast má við röskun á þjónustu Strætó segir Jóhannes Svavar Runólfsson, framkvæmdastjóri, gangi veðurspá eftir. Sérstaklega í úthverfum höfuðborgarsvæðisins og á landsbyggðinni.

Share this article