Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Millilandaflugi aflýst eða frestað

Read Full Article →

Icelandair hefur aflýst eða frestað öllu millilandaflugi sem var áætlað í fyrramálið fram yfir hádegi, og frestað brottförum frá Norður-Ameríku í dag. Önnur félög sem fljúga áttu frá Keflavíkurflugvelli í fyrramálið hafa seinkað brottför fram yfir hádegi. Þetta segir í tilkynningu frá Icelandair. Þar segir að veðrið muni að öllum líkindum hafa áhrif á innanlandsflug fyrri part dags. Farþegum sem eigi flug á morgun hafi staðið til boða síðan í gær að færa flugið um einn dag til eða frá Í tilkynningu Icelandair segir að farþegar sem áttu bókað með flugi sem hefur verið aflýst verði endurbókaðir og fái senda nýja ferðaáætlun. „Vegna umfangs röskunarinnar má búast við að endurbókunarferlið taki lengri tíma en venjulega.“ Farþegar eru beðnir að fylgjast vel með skilaboðum frá félaginu. Þá er tíundað að ekki sé þörf á að hafa samband við flugfélagið nema ný ferðaáætlun henti ekki. Vonskuveðri er spáð á stórum hluta landsins á morgun. Appelsínugul og gul viðvörun tekur gildi á öllu landinu í morgunsárið. Á vef Isavia eru farþegar beðnir um að fylgjast vel með veðurspám og upplýsingum um flug. Fréttin var uppfærð eftir að tilkynning frá Icelandair barst.

Share this article