Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Veðurviðvaranir hækkaðar í appelsínugult á Suðausturlandi og Vestfjörðum Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig á veðurviðvörunum á Suðausturlandi og á Vestfjörðum og er nú appelsínugul hríðarviðvörun í gildi vegna illviðrisins sem mun ganga yfir landið á morgun. Fyrir eru appelsínugular veðurviðvaranir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og á Miðhálendinu. Veðurstofa Íslands Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Fundur um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar fellur niður Mist Þormóðsdóttir Grönvold Opinn fundur efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um skýrslu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans fyrir árið 2025 hefur verið felldur niður vegna slæmrar veðurspár. Í tilkynningu Alþingis segir að fundurinn hafi átt að fara fram fimmtudaginn 26. mars. Aðrir nefndarfundir í fyrramálið verða haldnir rafrænt. Þingforseti telur þó að hægt verði að hefja þingfund klukkan 10:30 en staðan verður metin með hliðsjón af því hvernig veðrið þróast. Störf Alþingis raskast vegna veðurspár morgundagsins. Alþingi Fyrir 42 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mælist til þess að fólk sé ekki á ferðinni að óþörfu í fyrramálið. Veruleg röskun verður á samgöngum og skólahaldi. Vonskuveðri er spáð um allt land. Fyrir 58 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Valur þurfti framlengingu gegn HK Úrslitakeppni Íslandsmótsins í handbolta hófst í dag og deildarmeistarar Vals tóku á móti HK sem endaði deildina í áttunda sæti. Kópavogsliðið mætti Völsurum af fullum krafti og jafnt var eftir venjulegan leiktíma. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Körfubolti Haukar eru deildarmeistarar Haukar og KR mættust í úrslitaleik um efsta sæti deildarinnar í Bónusdeild kvenna í körfubolta í kvöld í lokaumferðinni. Ríkjandi Íslandsmeistarar Hauka höfðu þá betur gegn nýliðum KR, 82-62. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leikskólar „Kynferðisbrot á leikskólum eru áfall fyrir allt samfélagið“ Ráðgjafi sem hefur aðstoðað leikskóla þar sem upp kemur grunur um kynferðisbrot, segir sveitarfélögin vera að bregðast við núna. Hún segir slík mál áfall fyrir allt samfélagið. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar sagðir hafna friðaráætlun Bandaríkjanna Íranar eru sagðir hafa hafnað friðartillögu Bandaríkjanna um endi á stríðsátökunum í Mið-Austurlöndum, sem hafa varað í á fjórðu viku. Bandaríkjamenn segja aukið herlið á leið í heimshlutann og að þeir séu nálægt því að ná markmiðum sínum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Viðskiptafræðingur leiðir Miðflokkinn í Reykjanesbæ Gunnlaugur Kárason, kennari og viðskiptafræðingur, leiðir lista Miðflokksins í Reykjavík. Flokkurinn býður fram í Reykjanesbæ í þriðja sinn. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Menning Gróska í listalífi Ísafjarðar Gestavinnustofur Arts Iceland á Ísafirði eru opnar listafólki allt árið. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland „Í stað þess að ég fengi raunverulega hjálp braut hann mig enn meira“ Það er ekki eðlilegt að þurfa að horfa á geranda sinn í fjölmiðlum árum saman, segir þolandi Jeffrey Epsteins í nýju viðtali. Hún steig fram ásamt fjórum öðrum þolendum í viðtali við BBC. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Röskun á skólastarfi á höfuðborgarsvæðinu Skólastarf verður ekki með hefðbundnum hætti á höfuðborgarsvæðinu á morgun þegar fólk er beðið að halda sig heima í appelsínugulri veðurviðvörun. Þeir verða þó ekki lokaðir. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Talsverð röskun á flugi og vegum lokað víða um land Vonskuveðri er spáð um allt land á morgun og stórhríð suðvestantil. Fjölda flugferða hefur þegar verið aflýst eða þeim seinkað og verður vegum víða um land lokað í nótt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mælist til þess að fólk haldi sig heima. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Öll hjúkrunarrýmin komin aftur í gagnið eftir eldsvoðann á Sléttuvegi 22 hjúkrunarrými á Hrafnistu á Sléttuvegi hafa verið tekin í notkun á ný eftir eldsvoða þar í nóvember. Forstjóri Hrafnistu segir íbúa ánægða að fá að snúa heim. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Eistland Drónar sem lentu í Eistlandi og Lettlandi voru frá Úkraínu Drónar sem var flogið inn í lofthelgi Eistlands og Lettlands frá Rússlandi reyndust úkraínskir, en ekki rússneskir. Engan sakaði og skemmdir voru minniháttar. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Vinsældir Trumps dvína enn Þorgils Jónsson Stríðsrekstur í Mið-Austurlöndum virðist koma illa niður á vinsældum Donalds Trumps. Samkvæmt nýrri könnun Reuters og Ipsos eru 36% landsmanna ánægð með frammistöðu Trumps í starfi, sem er fjórum prósentustigum minna en var fjórum dögum áður. 62% svarenda segjast óánægð með frammistöðu Trumps. Stríðið og efnahagsumhleypingarnir sem þeim fylgdu hafa leitt til hækkandi eldsneytisverðs þrátt fyrir gagnaðgerðir bandarískra stjórnvalda. Rétt um 29% landsmanna segjast ánægðir með hagstjórn Trumps, sem er sex prósentustigum minna en var í síðustu viku. AP / Mark Schiefelbein Skjáskot / Af vef Reuters Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Millilandaflugi aflýst eða frestað Icelandair hefur aflýst eða frestað öllum flugferðum félagsins frá Keflavíkurflugvelli í fyrramálið. Önnur flugfélög hafa frestað brottförum. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Besta afkoma SS frá stofnun Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Sláturfélag Suðurlands hagnaðist um 1.085 milljónir króna árið 2025. Það er aukning frá árinu áður þegar hagnaður nam tæpum 872 milljónum. Samstæðan skilaði bestu afkomu fyrir skatta frá stofnun SS árið 1907. Í ársreikningi segir að aukin sala allra megindeilda, aðhald í innkaupum og starfsmannakostnaði, lækkun fjármagnsgjalda og aukning fjármunatekna skýri betri afkomu. Rekstrartekjur félagsins námu 19,3 milljörðum króna. Heildareignir í árslok 2025 voru 15,4 milljarðar króna. RÚV Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Skólameistarar verknámsskóla litlu nær um hvenær eigi að byggja Menntamálaráðherra segir bjart fram undan hjá verknámsskólum á landsbyggðinni sem beðið hafa eftir viðbyggingum við skólana í nokkur ár. Skólameistarar hafa fengið óljós svör um hvenær byggingarnar gætu risið. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þingmaður krafðist svara sem lögregla hafði þegar veitt Þingmaður Miðflokksins krafði lögregluna um skýr svör vegna fréttar um árás í bílakjallara. Lögreglan hafði nokkrum klukkustundum áður sent út leiðréttingu á fréttinni. Þingmaður Samfylkingar segir slíkan fréttaflutning stórhættulegan. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Sá ekki fyrir sér að reka kjörbúð en hefur tekið við Jónsabúð á Grenivík „Ég hugsaði: Jæja, allt í lagi að prófa“, segir Erica Patricia Rivera, nýr eigandi Jónsabúðar. Hún tók við rekstri þessarar rótgrónu verslunar í upphafi árs og fyrstu mánuðirnir hafa bæði verið stressandi og skemmtilegir. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Friðrik Danakonungur hefur falið Mette Frederiksen, leiðtoga Jafnaðarmanna, að stýra viðræðum um myndun ríkisstjórnar með aðkomu Sósíalíska þjóðarflokksins og Róttæka vinstriflokksins. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Ísfélagið hagnaðist um 2,8 milljarða í fyrra Ísfélagið hagnaðist um 2,8 milljarða króna í fyrra og eignir þess í lok árs 2025 námu 108,4 milljörðum. Félagið birti ársuppgjör í dag. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Valjón, Bísan, Nátt og Amaníta samþykkt sem nöfn Ragnar Jón Hrólfsson Nokkrum nýjum nöfnum hefur verið bætt við í mannanafnaskrá samkvæmt nýjustu úrskurðum mannanafnanefndar. Samþykkt hafa verið eiginnöfnin Híramía, Pia, Rikard, Felex, Iðja, Nora, Kaija, Marcus, Sunney, Amaníta, Valjón, Bísan og Nátt. Þá hefur mannanafnanefnd einnig fallist á föðurkenningarnar Artúrsdóttir, Andrason og Lúkasson. Beiðni um eiginnafnið Curver var hafnað. Hvaða nafn skyldi þetta barn fá? Kannski Nora, Kaija eða Valjón. Scott Webb Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Fyrrverandi stjórnandi hjá Google ráðinn útvarpsstjóri BBC Nýráðinn útvarpsstjóri BBC stýrði starfsemi Google í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Asíu í áratug. Hann hefur hvorki starfað í blaðamennsku né sjónvarpi áður. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Framlengja gæsluvarðhald yfir manni vegna árásar í bílakjallara Annar mannanna sem eru í haldi vegna líkamasárásarinnar í bílakjallaranum í Borgartúni verður í gæsluvarðhaldi til 22. apríl. Varðhaldið yfir hinum rennur út á föstudag. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Herir um 30 ríkja stofna til bandalags um opnun Hormússunds Ríkin segjast tilbúin til að beita viðeigandi ráðstöfunum til að tryggja öruggar siglingar um Hormússund. Umferð um sundið, sem er ein mikilvægasta siglingaleið heimshafanna, stöðvaðist nær alveg eftir að stríð braust út í lok febrúar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Ragnheiður Erla Bjarnadóttir látin Séra Ragnheiður Erla Bjarnadóttir sem varð landsþekkt fyrir þátttöku og stjórn í spurningaþáttum í sjónvarpinu er látin, 72 ára að aldri. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Börðust yfir fjöllin með sjúkling og rúðuþurrkurnar gáfu sig Sjúkraflutningamenn, björgunarsveitir og mokstursmenn unnu afrek við að koma sjúklingi frá Egilsstöðum til Akureyrar í óveðrinu aðfaranótt þriðjudags. Skyggni var ekkert á köflum og góð ráð dýr þegar rúðuþurrkur hættu að ganga á sjúkrabílnum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnsýsla Ekki skýrt í lögum hver ber ábyrgð á líki ef engir vandamenn eru til staðar Ekki er skýrt í lögum hver ber ábyrgð á líki ef engir vandamenn eru til staðar til að hafa samband við útfararstofu eftir að dánarvottorð hefur verið gefið út. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn þingmanns Framsóknarflokksins. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kópavogsbær Ísaksskóli opnar skóla í Kópavogi Brynjólfur Þór Guðmunds