Veðurstofa Íslands hækkaði í gærkvöld viðvörunarstig á veðurviðvörunum á Suðausturlandi og á Vestfjörðum og er nú appelsínugul hríðarviðvörun í gildi vegna illviðrisins sem mun ganga yfir landið í dag. Gular og appelsínugular viðvaranir verða um allt land fyrir hádegi en veðrið ætti að ganga niður í flestum landshlutum þegar líða tekur á daginn. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands virðast spár ætla að ganga eftir. Lægðarskilin eru komin að landi á Reykjanesi og suðvesturhorninu og búist er við því að framhaldið verði eins og spár gera ráð fyrir um allt land. Aðgerðastjórn almannavarna á höfuðborgarsvæðinu mælist til þess að fólk haldi sig heima í fyrramálið á meðan versta veðrið gengur yfir. Skólahald á höfuðborgarsvæðinu raskast og hjá Reykjavíkurborg verður lágmarksopnun með fáu starfsfólki. Þau sem nauðsynlega þurfa að fara með börnin í skóla eru beðin að tilkynna skólastjórnendum um komu með tölvupósti. Töluverð röskun verður á þjónustu Reykjavíkurborgar á meðan versta veðrið gengur yfir á morgun og veðurviðvaranir eru í gildi. Í tilkynningu frá borginni segir að áhersla verði lögð á að þjónusta við viðkvæma hópa skerðist ekki. Búast má við verulegum samgöngutruflunum á Suðvesturhorninu. Miklar vegalokanir verða vítt og breitt um landið í dag vegna óveðursins sem nú er að ganga yfir landið. Óvissustig verða í gildi á fjölmörgum vegum og þeir vegir gætu lokast með stuttum fyrirvara. Hellisheiði er lokuð, Þrengslin og þjóðvegurinn frá Mosfellsbæ til Borgarness er lokaður, þar með talið Hvalfjarðargöng. Þingvallavegur er einnig lokaður. Vegirnir verða lokaðir þar til að veðrið gengur yfir. Reykjanesbraut er á óvissustigi milli kl. 06:00-12:00 og gæti því lokast með stuttum fyrirvara. Krýsuvíkurvegur er lokaður. Á Vesturlandi verða Hvalfjarðargöngin lokuð milli kl. 04:00 og 13:30. Holtavörðuheiði og Brattabrekku verður lokað kl. 06:00 vegna veðurs. Þetta er ekki tæmandi listi yfir lokanir og óvissustig á vegum landins, en lokanir á vegum og óvissustig á vegum gætu átt eftir að breytast eftir því sem óveðrið gengur yfir landið. Nýjustu upplýsingar um færð og ástand vega má alltaf nálgast á vef Vegagerðarinnar; umferdin.is Millilandaflug um Keflavíkurflugvöll og innanlandsflug um Reykjavíkurflugvöll mun einnig raskast vegna veðurs. Fjölmörgum flugferðum bæði í millilandaflugi og innanlandsflugi hefur verið aflýst eða þeim seinkað þar til síðar í dag. Flugfarþegar eru beðnir um að fylgjast vel með veðurspám og upplýsingum um flug.