- What: Labor unions send 'notice of termination' to Daða
- Impact: Political and labor relations
Þrenn stéttarfélög; BSRB, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands, birta Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra „uppsagnarbréf“ á heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Tilefnið eru áform ráðherrans um að afnema áminningarskyldu opinberra starfsmanna. Þau hafa fallið í grýttan jarðveg hjá verkalýðsfélögum. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 16. mars og fyrsta umræða fór fram þann 19. Það er til umfjöllunar hjá efnahags- og viðskiptanefnd þingsins. „Með bréfi þessu er þér sagt upp störfum. Starflok þín verða samdægurs,“ segir í auglýsingunni. Auglýsingin er skrifuð eins og lagabreytingin hafi tekið gildi og að ekki sé lengur gerð krafa um áminningu starfsmanns áður en honum er sagt upp. „Mistök í starfi eru því ekki lengur liðin. Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði.“