Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Áfall yfir morgunkaffinu

Read Full Article →

Fjármála- og efnahagsráðherra segir engin áform um að bakka með frumvarp hans um afnám áminningarskyldu opinberra starfsmanna þrátt fyrir þrýsting verkalýðsfélaga þar um. Þetta kom fram í svari hans við fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins. Tilefni fyrirspurnarinnar var auglýsing sem birtist í Morgunblaðinu frá BSRB, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kennarasambandi Íslands og góðáminning.is. Auglýsingin er í formi uppsagnarbréfs þar sem segir að starfskrafta Daða Más sé ekki lengur óskað og að uppsögnin taki gildi samdægurs. Þar sem áminningarskylda hafi verið afnumin gefist ráðherra ekki tækifæri til að bæta ráð sitt. „Mistök í starfi eru því ekki lengur liðin. Enginn fær annan séns. Annað tækifæri er ekki í boði. Á þeirri forsendu hefur verið tekin ákvörðun um uppsögn þína frá störfum án aðvörunar,” segir í auglýsingunni. Daði viðurkenndi að það hafi verið „nokkuð áfall yfir morgunkaffinu” að lesa auglýsinguna en benti á að téð uppsögn fór ekki eftir þeim reglum sem munu gilda verði frumvarpið samþykkt. „Ég fékk til dæmis aldrei leiðbeinandi samtal og mun óska eftir því frá viðkomandi aðilum né heldur tel ég uppsagnarbréfið hafi uppfyllt skilyrði stjórnsýslulaga um nægilegan rökstuðning.” Enn fremur tók Daði Már fram að það sé vilji ríkisstjórnarinnar að frumvarpið nái fram að ganga, enda telji hann víðtæka samstöðu um málið á þingi.

Share this article