- What: Inflation rises to 5.4% in March.
- Impact: Affects consumers through higher prices for food and gas.
Verðbólga mældist 5,4 prósent í mars og hefur ekki verið meiri síðan í ágúst 2024. Verðbólgan hefur aukist um 1,7 prósentustig frá því í nóvember. Verðbólga minnkaði jafnt og þétt frá því í júlí 2024 fram í mars í fyrra. Eftir það dansaði hún í kringum fjögur prósentin þar til í nóvember þegar hún fór í 3,7 prósent og hafði ekki verið minni síðan í desember 2020. Síðan þá hefur verðbólgan verið á uppleið, mældist 5,2 prósent fyrstu tvo mánuði ársins og að þessu sinni 5,4 prósent. Verð á mat og óáfengum drykkjum hækkaði um 0,7 prósent milli mánaða og bensín um 5,8 prósent. Dísilverð hækkaði um 6,9 prósent.