Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga eykst á evrusvæðinu

Read Full Article →

Verðbólga á evrusvæðinu jókst í 2,5% í mars, úr 1,9% í febrúar, samkvæmt nýjustu tölum. Hækkunin virðist einkum tengjast hækkandi orkuverði í kjölfar spennu við Persaflóa. Orkuverð í Evrópu hækkaði að jafnaði um 4,9% á tímabilinu. Þrátt fyrir það eru enn takmörkuð merki um verðbólguþrýsting á breiðum grunni. Samkvæmt umfjöllun The Wall Street Journal lækkaði kjarnaverðbólga frá fyrri mánuði og mældist 2,3% í mars, á ársgrundvelli. Evrópski seðlabankinn hefur brugðist við versnandi horfum með því að lækka hagvaxtarspá sína. Nú er gert ráð fyrir einungis 0,9% hagvexti á árinu. Á sama tíma gerir bankinn ráð fyrir að verðbólga verði að meðaltali um 2,6% út árið. Bankinn kynnti einnig sviðsmyndir fyrir efnahagsþróunina. Í svartsýnustu sviðsmyndinni, þar sem gert er ráð fyrir verulegu rofi á olíuframleiðslu og flutningum, gæti verðbólga hækkað í allt að 4,8% á árinu.

Share this article