Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga vestanhafs komin upp í 3,8%

Read Full Article →

Verðbólga í Bandaríkjunum jókst um 0,5 prósentustig milli mars og apríl og mældist 3,8%. Verðbólgan hefur ekki verið jafn mikil í Bandaríkjunum síðan í maí 2023. Verðbólgumælingin var yfir spám hagfræðinga sem tóku þátt í könnun WSJ en þeir höfðu að jafnaði gert ráð fyrir 3,7% verðbólgu í apríl. Kjarnaverðbólga, sem undanskilur vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, mældist 2,8%, samanborið við 2,6% í mars. Hún var jafnframt yfir spám en hagfræðingar höfðu spáð að hún yrði 2,7%. Aukin verðbólga er einkum rakinn til hækkunar eldsneytisverðs vegna áhrifa stríðsins í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann styðji hugmyndir um að leggja tímabundið niður alríkisskatt á bensín vegna hækkunar eldsneytisverðs.

Share this article