Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga óbreytt en óvíst með næstu mælingu

Read Full Article →

Verðbólga í Bandaríkjunum mældist 2,4% í febrúar, líkt og í fyrri mánuði. Óvissa er þó um næstu verðbólgumælingu vegna áhrifa stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Verðbólgumælingin var í samræmi við spár hagfræðinga. Kjarnaverðbólga, sem undanskilur vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, var einnig óbreytt í 2,5% og í samræmi við spár hagfræðinga. Í umfjöllun WSJ segir að fyrir stríðið í Íran var horf til verðbólgumælingarinnar fyrir febrúarmánuð sem afar mikilvægar hagtölur fyrir næsta vaxtaákvörðunarfund Seðlabanka Bandaríkjanna sem fer fram í næstu viku. Nú verði hins vegar horf til þessarar mælingar þegar kemur að samanburði við næstu verðbólgutölur sem verða litaðar af hækkun eldsneytisverðs. Verð á framvirkum samningum með hráolíu í Bandaríkjunum hefur hækkað verulega frá því að stríðið hófst og nemur meðalverð í mars um 82 dölum á tunnu, samanborið við 65 dali í febrúar. Einföld þumalputtaregla er að hver 10 dala hækkun á tunnu af olíu leiðir til 0,2 prósenta hækkunar verðbólgumælingum vestanhafs, samkvæmt útreikningum aðalhagfræðings hjá RSM.

Share this article