Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mesta verðbólga í þrjú ár

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 22 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Mesta verð­bólga í þrjú ár Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðbólgan í Bandaríkjunum var 3,8 prósent í apríl og hefur ekki verið meiri í þrjú ár. Verðbólgan jókst um hálft prósentustig milli mánaða. Aukin verðbólga er ekki síst rekin til stríðsins við Íran og áhrifa þess á olíudreifingu frá Persaflóa. Vísitala orkuverðs í Bandaríkjunum hækkaði um 17,9 prósent milli ára. Það er mesta hækkun allra undirflokka verðbólgunnar. Maður fyllir á tank flutningabíls í Texas í Bandaríkjunum. EPA / FAZRY ISMAIL Fyrir 2 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sam­göngu­mál í brenni­depli í borg­inni Skiptar skoðanir eru meðal flokka um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt kosningaprófi RÚV. Flestir flokkar styðja við Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins en skiptast í fylkingar um Borgarlínu og Suðurlandsbraut. Fyrir 6 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Instruct­ure borg­aði hökk­ur­um fyrir að dreifa ekki gögnum úr Canvas Fyrirtækið sem rekur Canvas-kerfið borgaði hökkurum fyrir að dreifa ekki gögnum sem þeir komust yfir. Sviðsstjóri kennslusviðs HÍ segir að nemendur og starfsfólk geti haldið áfram að nota kerfið. Fyrir 40 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Báðir leik­irn­ir gegn Eg­ypt­um sýndir á RÚV Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Egyptum í tveimur vináttuleikjum í vikunni. Leikið verður í Kaíró á morgun og laugardaginn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Grímsnes- og Grafningshreppur Stefna að bygg­ingu 700 fer­metra at­vinnu­hús­næð­is í Gríms­nesi Fasteignaþróunarfélagið Laufdal ehf. og Drangar hf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf vegna uppbyggingar verkefnisins Miðtún 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Uppbyggingin felur meðal annars í sér byggingu 700 fermetra atvinnuhúsnæðis. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Hlaup Hljóp 742,6 kíló­metra á tíu dögum Hlaupadrottningin Karlotta Ósk Óskarsdóttir sló þrjú Íslandsmet þegar hún hljóp tæplega 750 kílómetra í tíu daga hlaupi í Búlgaríu. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á níu mánuðum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál „Þarna gengu menn bara of langt“ Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir ekki forsvaranlegt að valda dýrum dauða og þjáningum í mótmælum. Tíu grísir drápust og fjölmörg dýr eru hölt og skrámuð eftir að brotist var inn í svínabú fyrirtækisins og svínum sleppt út. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Sakar Ic­elandair um að snið­ganga fé­lag­ið Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna sakar Icelandair um að reyna að sniðganga félagið. Og ekki í fyrsta skipti. Icelandair boðar flugmenn til fundar á föstudag án milligöngu FÍA. Hann þvertekur fyrir að flugmenn séu í óformlegu verkfalli. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Helgi Bjart­ur áfrýj­ar til Lands­rétt­ar Helgi Bjartur Þorvarðarson, sem var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í síðasta mánuði fyrir að brjóta kynferðislega gegn 10 ára dreng og húsbrot, hefur áfrýjað dóminum. Ákæruvaldið skoðaði líka að áfrýja. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vara­sam­ir vindar undir Eyja­fjöll­um og í Öræfum Brynjólfur Þór Guðmundsson Útlit er fyrir hvassa vindstrengi undir Eyjafjöllum og í Öræfum síðdegis og fram á kvöld. Vakthafandi veðurfræðingur varar við að vindurinn verði það ákafur að hann reynist varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Norðlæg átt verður ríkjandi í dag og víðast verður vindstyrkurinn á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Mun hvassara verður þó syðst og austan Öræfa síðdegis, samkvæmt veðurspánni. Bílar á ferð undir Eyjafjöllum. Safnmynd. Víðir Hólm Ólafsson Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Spá ýmist minnk­andi eða óbreyttri verð­bólgu Íslandsbanki spáir óbreyttri verðbólgu í maí en Landsbankinn telur að hún fari undir fimm prósent í fyrsta skipti á árinu. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tíu grísir dráp­ust eftir inn­brot í svína­bú Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í fyrrinótt. Skemmdir voru unnar á skrifstofu og svínahúsum búsins með þeim afleiðingum að dýr gengu laus og sum drápust. Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fjár­fest­ing­ar og þróun sett á bið vegna óvissu Rúmlega 400 milljóna króna tap var á rekstri Reykjalundar í fyrra. Stjórnendur segja mikla óvissu hafa skapast meðan beðið sé nýrrar endurhæfingarstefnu stjórnvalda. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Ný­lið­arn­ir í þjálf­ara­krísu mánuði fyrir mót Það gengur á ýmsu í herbúðum Curaçao sem eru að keppa á heimsmeistaramótinu í fótbolta í fyrsta sinn í sumar. Fred Rutten þjálfari liðsins sagði starfi sínu lausu í gær. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Þrír und­ir­ráð­herr­ar hafa yf­ir­gef­ið stjórn Star­mers Yfir 80 þingmenn breska Verkamannaflokksins hvetja Starmer til að segja af sér Þrír undirráðherrar hafa hætt í ríkisstjórn Starmers í morgun Eftir slakt gengi Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningum á dögunum hefur þrýstingur á leiðtoga flokksins aukist Fyrir kosningarnar var kraumandi óánægja með störf Starmers Starmer segist ætla að sitja áfram í embætti og ítrekaði á ríkisstjórnarfundi í morgun að hann tæki ábyrgð á slöku gengi í kosningum fyrir helgi FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fylgj­ast með fram­kvæmd kosn­ing­anna Brynjólfur Þór Guðmundsson Fimmtán manna sendinefnd Evrópuráðsins kemur til Íslands á morgun til að fylgjast með sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Nefndinni verður skipt í sjö hópa á laugardag sem fara vítt og breitt um landið og fylgjast með því sem fram fer á kjörstöðum. Sendinefndin verður hér frá miðvikudegi til sunnudags og skilar af sér skýrslu um framkvæmd kosninganna. Auk þess að fara á kjörstaði ræða nefndarmenn við embættismenn og fulltrúa félagasamtaka. Landskjörstjórn segist í tilkynningu fagna komu kosningaeftirlitsmannanna og telur að heimsóknir sem þessar skapi mikilvægan lærdóm. Nýju kjörkassarnir sem verða notaðir um helgina. RÚV / Ragnar Visage Fréttin var uppfærð með viðbrögðum landskjörstjórnar. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Vildu hátíð þar sem hins­eg­in­leik­inn væri sjálf­sagð­ur: Fór fram úr björt­ustu vonum Hjónin Eva Rún og Halla Þórlaug standa í annað sinn fyrir bókmenntahátíðinni Queer Situations eftir vel heppnað fyrra skipti. Þeim þykir mikilvægt að birtingarmynd hinseginleikans fjölbreytt og að komið sé í veg fyrir stigveldi innan samfélagsins. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Um­deild­ur sendi­herra Trumps á Ís­landi færist nær stað­fest­ingu Billy Long færðist skrefi nær staðfestingu sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í gærkvöld. Long var ríkisskattstjóri um stund en var vikið úr því starfi og boðið starf sendiherra á Íslandi. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Vill kanna reglur um sam­fé­lags­miðla­notk­un barna Brynjólfur Þór Guðmundsson Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir líklegt að nýjar reglur um samfélagsmiðlanotkun barna verði kynntar í sumar. Von der Leyen ávarpaði ráðstefnu um gervigreind og börn í Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur, í dag. Hún sagði að sérfræðingahópur hefði verið beðinn um að leggja fram tillögur um hvað ætti að gera til að vernda börn á samfélagsmiðlum. Svo gæti farið að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynni tillögur að löggjöf um samfélagsmiðla strax í sumar, sagði von der Leyen. Ursula von der Leyen. AP / Anthony Pizzoferrato Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Beittu gísla sína miklu kyn­ferð­is­of­beldi og pynt­ing­um Hamas og bandamenn þeirra beittu gísla sína kerfisbundnu og umfangsmiklu kynferðisofbeldi eftir árásirnar á Ísrael 7. október 2023. Niðurstöður óháðrar rannsóknarnefndar leiða þetta í ljós. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Rann­saka strok seiða úr land­eldi í Keldu­hverfi Laxaseiði sem sluppu úr landeldi í Kelduhverfi í Norðurþingi voru líklega orðin sjógöngufær. MAST rannsakar strokið og bíður nánari upplýsinga frá fyrirtækinu. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Víða strekk­ings­vind­ur Lægð fyrir austan land veldur allhvassri norðanátt nokkuð víða á landinu. Norðan til verður allnokkur úrkoma og gæti snjóað í 200 til 300 metra hæð yfir sjó. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Úkra­ínu­menn til­bún­ir að draga úr lang­dræg­um árásum ef Rússar forð­ast fjölda­árás­ir Brynja Dögg Friðriksdóttir Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti. EPA / ANGELO CARCONI Rússar gerðu drónaárásir á fjölbýlishús í Kyiv í nótt um klukkan hálf 4 að staðartíma. Ekki hafa borist fregnir af manntjóni. Þriggja daga vopnahléi milli Rússa og Úkraínumanna lauk á miðnætti. Samkvæmt Kyiv Independent lýsti Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti því yfir skömmu áður en vopnahléinu lauk að Úkraínumenn væru tilbúnir til að draga úr langdrægum árásum á hernaðarlega innviði í Rússlandi ef stjórnvöld í Moskvu forðast fjöldaárásir. Enn hafa skipti á stríðsföngum ekki farið fram líkt og um var samið með vopnahléinu. Úkraínumenn hafa sent lista með nöfnum stríðsfanga til Bandaríkjamanna sem miðla listanum áfram til Rússa. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Banda­ríkja­stjórn vill opna þrjár her­stöðv­ar á Suður-Græn­landi Samninganefndir Bandaríkjanna og Danmerkur hafa átt reglulegar viðræður undanfarna mánuði um aukna viðveru bandaríska hersins á Grænlandi. Bandaríkjastjórn vill auka viðveru sína og hafa eftirlit með skipaumferð um GIUK-hliðið. 12. maí 2026 kl. 2:27ERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Fyrrum skrif­stofu­stjóri for­seta­skrif­stofu Úkra­ínu ákærð­ur í spill­ing­ar­máli Andríj Jermak var einn nánasti samstarfsmaður Volodomyrs Zelenskys Úkraínuforseta þar til upp komst um umfangsmikil spillingarmál sem hann er talinn eiga þátt í. Hann gæti átt yfir höfði sér fleiri ákærur vegna spillingarmála. 12. maí 2026 kl. 1:35ERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Að minnsta kosti 6 með jákvæð hant­a­veiru­smit - 18 með væg ein­kenni Brynja Dögg Friðriksdóttir Síðustu farþegarnir og hluti áhafnari

Share this article