Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðbólga í Bandaríkjunum tekur stökk

Read Full Article →

Verðbólga í Bandaríkjunum tók stökk í mars og mælist 3,3%, samanborið við 2,4% í febrúar, samkvæmt nýbirtum tölum. Verðbólgumælingin var í samræmi við væntingar hagfræðinga sem tóku þátt í könnun WSJ sem höfðu spáð 3,3% verðbólgu. Kjarnaverðbólga, sem undanskilur vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, mældist 2,6%, samanborið við 2,5% í febrúar. Hagfræðingar höfðu gert ráð fyrir að hún myndi fara upp í 2,7% í mars. Sjá einnig Spá 4,2% verðbólgu í Bandaríkjunum Orkuverð hefur aukist um 12,5% á síðustu tólf mánuðum, sen til samanburðar mældist árshækkun þessa liðs 0,5% í febrúar. Bensínverð hækkaði um 18,9% milli ára.

Share this article