OECD varar við því að verðbólga í Bandaríkjunum fari upp í 4,2% á þessu ári vegna hækkandi orkuverðs í kjölfar stríðsins í Miðausturlöndum. Samkvæmt umfjöllun Financial Times yrði það hæsta verðbólga meðal G7-ríkjanna. Í bráðabirgðamati OECD kemur fram að verðhækkanir á olíu og gasi muni þrýsta verðlagi upp víða um heim og jafnframt veikja hagvöxt ef truflanir á orkuútflutningi frá svæðinu versna. OECD kallar sérstaklega eftir því að horft sé til hættunnar sem skapast ef átökin dragast á langinn, enda geti langvarandi hækkun á orkuverði bæði aukið kostnað fyrirtækja og ýtt undir verðbólgu hjá neytendum, samkvæmt nýju bráðabirgðamati OECD í dag. Samkvæmt FT reiknar OECD með að bandarísk verðbólga hækki úr 2,6% í fyrra upp í 4,2% á þessu ári. Jafnframt sé búist við að hagvöxtur í Bandaríkjunum hægi á sér í 2% á þessu ári og verði 1,7% árið 2027. Vaxandi verðbólguþrýstingur muni þar með skerða kaupmátt heimila og draga úr þrótti í hagkerfinu. Á heimsvísu telur OECD að hagvöxtur fari úr 3,3% í fyrra niður í 2,9% árið 2026 áður en hann taki lítillega við sér á næsta ári. Fram kemur í umfjölluninni að heimsbúskapurinn hafi áður sýnt töluverðan styrk, meðal annars vegna mikillar fjárfestingar í gervigreind og hækkana á hlutabréfamörkuðum, en að sú mynd hafi breyst verulega eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran í lok febrúar. OECD bendir á að Hormússund skipti þar lykilmáli, enda fari um fjórðungur allrar olíu sem flutt er sjóleiðis um sundið og fimmtungur flutninga á fljótandi jarðgasi. Áhrifin takmarkast þó ekki við orku. Stofnunin bendir einnig á áhættu tengda áburði og öðrum hráefnum, þar sem Persaflóaríki séu stórir útflytjendur brennisteins, helíums og bróms og gegni mikilvægu hlutverki í alþjóðlegum aðfangakeðjum. OECD hefur áður bent á að aukin verðbólga og hærri aðfangakostnaður geti dregið úr vexti og aukið áhættu á fjármálamörkuðum. Í umfjöllun FT segir jafnframt að þessi þróun hafi þurrkað út þann jákvæða hagvaxtarauka sem áður hafði verið farinn að sjást í alþjóðahagkerfinu fyrr á árinu. OECD hafi áður séð fyrir sér að hagvöxtur gæti orðið um 0,3 prósentustigum meiri en átökin í Miðausturlöndum hafi eytt þeim bata. Verðbólguspá OECD fyrir G20-ríkin hefur einnig verið hækkuð verulega Nú er gert ráð fyrir 4% verðbólgu árið 2026, sem er 1,2 prósentustigum meira en stofnunin spáði í desember. Í Evrópu eru horfurnar einnig lakari en áður. OECD gerir ráð fyrir aðeins 0,8% hagvexti á evrusvæðinu á þessu ári, áður en hann taki við sér í 1,2% á næsta ári.