Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hagvöxtur í Bandaríkjunum sá minnsti frá heimsfaraldri

Read Full Article →

Hagvöxtur í Bandaríkjunum var 1,4% á síðustu þremur mánuðum liðins árs, samkvæmt tölum sem viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna birti í morgun. Þetta er mun minni hagvöxtur en greinendur höfðu spáð, sem var 2,5% hagvöxtur. Ef horft er á árið í heild sinni er hagvöxturinn líka minni en spáð var. Hann var 2,2%, sem er minnsti hagvöxtur frá 2020 þegar heimsfaraldur geisaði. Því var spáð að hagvöxturinn yrði 2,8%. Viðskiptaráðuneytið segir að þessi niðurstaða endurspegli að dregið hafi út útflutningi, ríkisútgjöldum og einkaneyslu. Þetta hefði að hluta vegið upp á móti aukinni fjárfestingu. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var 4,4%. Donald Trump Bandaríkjaforseti brást reiður við þessum tölum í færslu á Truth Social . Þar sagði hann að lokun alríkisstofnana síðastliðið haust, sem stóð frá 1. október til 12. nóvember, hefði kostað tvö prósentustig í hagvexti. Sú lokun hefði verið á ábyrgð Demókrata. Trump skellti einnig hluta af skuldinni á Jerome Powell seðlabankastjóra Bandaríkjanna. „Að auki: LÆGRI VEXTIR. „Seini“ Powell er sá VERSTI!!“ sagði hann.

Share this article