Verðbólga á evrusvæðinu mældist 2,5% í marsmánuði, samanborið við 1,9% í febrúar, samkvæmt nýjum tölum Eurostat . Verðbólgumarkmið Seðlabanka Evrópu nemur 2,0%. Mikil aukning milli mánaða skýrist af því að 12 mánaða breyting á orkuverði mældist jákvæð um 4,9% í mars en til samanburðar mældist ársbreyting þessa undirliðs neikvæð um 3,1% í febrúar. Þrátt fyrir stökk milli mánaða var mælingin undir spám hagfræðinga sem tók þátt í könnun Reuters sem höfðu að jafnaði gert ráð fyrir 2,6% verðbólgu í mánuðinum. Kjarnaverðbólga, sem undanskilur sveiflukennda vöruflokka í matvæla- og orkugeiranum, dróst hins vegar saman milli mánaða og mældist 2,3% samanborið við 2,4% í febrúar. Svokölluð þjónustuverðbólga dróst saman úr 3,4% í 3,2% milli mánaða.