- What: G7 foreign ministers meet to discuss global issues
- Impact: International diplomatic discussions on war, peace, and global governance
Tveggja daga ráðstefna utanríkisráðherra G7, sjö stærstu iðnríkja heims, hófst skammt fyrir utan París í morgun. Búist er við að ráðherrarnir leggi áherslu á að draga úr þeim mikla ágreiningi sem er við Bandaríkjastjórn, leiðir til að koma á friði víða um veröld og útvegun mannúðaraðstoðar. Í dag munu ráðherrarnir ræða umbætur á stjórnmálakerfi heimsins og á morgun verða styrjaldirnar í Mið-Austurlöndum og Úkraínu til umræðu. Frakkar hafa boðið utanríkisráðherrum Brasilíu, Indlands, Úkraínu, Sádi Arabíu og Suður-Kóreu þátttöku. Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio er væntanlegur til Parísar á morgun, föstudag. Þetta er fyrsta utanlandsferð hans eftir að Bandaríkin og Ísrael réðust til atlögu gegn Íran í febrúarlok. Þar tekur hann þátt í umræðum um þá styrjöld og innrásarstríð Rússa í Úkraínu, þar sem Bandaríkin hafa reynt að miðla málum, seinast á tvíhliða fundi með Úkraínumönnum um liðna helgi. AFP-fréttaveitan hefur eftir heimildarmanni, sem krefst nafnleyndar, að ekki verði gefin út sameiginleg yfirlýsing í lok ráðstefnunnar, líkt og venja er fyrir, heldur birti gestgjafarnir Frakkar yfirlýsingu. Franski utanríkisráðherrann Jean-Noël Barrot segir markmið Frakka að ávarpa það mikla ójafnvægi og samkeppni sem skapast hefur í heiminum og hefur alvarleg áhrif á alla jarðarbúa. G7-ríkin eru Frakkland, Bandaríkin, Kanada, Þýskaland, Ítalía, Japan og Bretland. Samvinna þeirra hefur staðið allt frá árinu 1975 þegar fulltrúar sex voldugustu iðnríkjanna hittust í Chateau de Rambouillet, skammt frá Vaux-de-Cernay, þar sem yfirstandandi ráðstefna er haldin. Fjármála- og orkumálaráðherrar ríkjanna sjö auk seðlabankastjóra þeirra hittast á fjarfundi á mánudaginn. Franski fjármálaráðherrann Roland Lescure segir umræðuefnið verða vaxandi verðbólga ásamt yfirvofandi orku- og fjármálakreppu.