Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

G7 ríkin skoða að ganga á olíusjóði vegna hækkandi verðs

Read Full Article →

Fjármálaráðherrar G7-ríkjanna boðuðu til fundar í dag klukkan 12:30 þar sem ræða á möguleikann á að grípa til sameiginlegra neyðarbirgða olíu vegna síhækkandi verðs á heimsmarkaði. Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði um helgina að hann teldi ekki ástæðu til þess að ganga á varaolíubirgðir Bandaríkjanna. Birgðir landsins væru enn góðar og taldi hann að verð myndu brátt taka að lækka á ný. Varabirgðunum er stjórnað af Alþjóðaorkustofnuninni og tilgangurinn er að nýta þær, til dæmis ef olíuverð virðist ætla úr böndunum. The Financial Times hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum kunnugum málinu að þrjú ríki hafi lýst stuðningi við notkun varabirgðanna og að Bandaríkin séu þar á meðal. Hráolíuverð ekki hærra síðan innrásin í Úkraínu hófst Hráolíuverð lækkaði eilítið í morgun síðan um helgina og stendur í um 100 dollurum á tunnu. Þetta er í fyrsta sinn síðan í júlí 2022 sem olíuverð nær þessum hæðum. Það var þegar innrás Rússlands inn í Úkraínu hófst. Hráolíuverð hækkaði mikið um helgina og fór verð á tunnu af Brent-Norðursjávarolíu, sem yfirleitt er notað sem viðmið fyrir alþjóðamarkað, í um 120 dollara. Hún er þó aftur komin niður í um 104 dollara. Tunna af hráolíu frá West Texas International kostar rétt rúmlega 100 dollara í dag. Erfitt að segja hvernig verðþróun verður hér á landi Olíuverð hafa hækkað skarpt eftir að Ísrael og Bandaríkin hófu árásir sínar á Íran sem svaraði með árásum á nágrannalönd í Persaflóa. Hækkanir á verði hráolíu á heimsvísu hafa í för með sér verðhækkanir á eldsneyti fyrir neytendur hér á landi og gætu haft gríðarlegar efnahagslegar afleiðingar. Erfitt er að segja til um hvenær hækkandi hráolíuverð byrjar að hafa áhrif á neytendur hér á landi. Magnús Hafliðason framkvæmdastjóri sagði í síðustu viku að áhrifa væri þegar farið að gæta hér á landi. Hráolíuverð gæti farið í 150 dollara í lok mars Óttast er að stríðsátökin í Mið-Austurlöndum dragist á langinn. Trump sagði upphaflega að átökin gætu enst í fjórar til fimm vikur en þann 7. mars sagði Karoline Leavitt að aðgerðir Bandaríkjanna gætu tekið allt að sex vikur. 10 dagar eru síðan árásir Ísraels og Bandaríkjanna hófust. 15 milljón tunnur, eða um 20% af hráolíu heimsins, eru fluttar daglega um Hormússundið sem liggur milli Persaflóa og Ómanflóa. Átökin hafa orðið til þess að nánast engir flutningar eiga sér stað þessa dagana. Íran, Ísrael og Bandaríkin hafa þá einnig gert árásir á olíu- og gasvinnslustöðvar sem minnkar enn frekar möguleikann á að framleiða olíu. Faisal Islam, sérfræðingur fréttastofu BBC í efnahagsmálum, segir vísbendingar um að haldi átök áfram í Mið-Austurlöndum út mars fari olíuverð mögulega yfir 150 dollara á tunnu.

Share this article