Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði leiðtogum Írans í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social og sagði að þeir yrðu að taka viðræður alvarlega til að binda endi á átökin. „Þeir ættu að taka þetta alvarlega áður en það verður of seint,“ skrifaði Trump á Truth Social. Trump sagði jafnframt að opinber ummæli íranskra leiðtoga væru í ósamræmi við það sem þeir segðu bak við tjöldin. Á bak við tjöldin væru þeir að „grátbiðja“ um samning en opinberlega segðust þeir einungis vera að skoða málin. Á miðvikudag sagði Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, að stjórnvöld í Teheran hefðu „engin áform um viðræður“ að svo stöddu og að engar samningaviðræður hefðu átt sér stað. Trump gagnrýndi einnig Atlantshafsbandalagið (NATO) og sagði að aðildarríki þess hefðu „ekki gert neitt“ til að styðja Bandaríkin í hernaðaraðgerðum gegn Íran. Ummælin eru í takt við nýlega gagnrýni hans á bandalagið, sem Bandaríkin eru hluti af. Bandamenn Bandaríkjanna hafa sagt að þeir hafi ekki verið ráðfærðir áður en Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran í lok febrúar. Sumir hafa jafnframt gagnrýnt stjórn Trumps fyrir hafa ekki útskýrt hver raunveruleg markmið aðgerðanna séu. Þrátt fyrir þetta hafa nokkur ríki heimilað Bandaríkjunum að nota herstöðvar sínar í átökunum. „NATO-ríki hafa alls ekkert gert til að hjálpa,“ skrifaði Trump í færslu á Truth Social og bætti við að Bandaríkin muni ekki gleyma sinnuleysi NATO í þessu máli.